15.3.2013 | 22:44
Rannsóknarnefnd samgönguslysa
Frétt af mbl.is
Efast um gagn sameiningar
Innlent | Morgunblaðið | 13.3.2013 | 5:30Vafasamt er að sameining rannsóknarnefnda sjó-, flug- og umferðarslysa í eina leiði af sér sparnað eins og lagt er upp með í nýjum lögum um rannsóknir á samgönguslysum. Þetta segir Ingi Tryggvason, formaður rannsóknarnefndar sjóslysa.
Rannsóknir sjóslysa hafa nú kannski ekki verið með allra besta móti síðustu árin eftir að lögum um nefndina var breytt fyrir nokkrum árum. Nú held ég að endanlega sé búið að klúðra rannsóknum sjóslysa með þessari síðustu breytingu lagana. Lögin um ransóknir samgönguslysa eru að vísu upp á 13 síður það dugar ekki minna, og í þeim er vel passað upp á það að engin geti komist í þau gögn til að kynna sér þau slys sem nefndin hefur tekið til rannsóknar. Sennilega þarf að hafa minnst 2 lögfræðinga í nefndininni af þeim 7 sem þar eiga að vinna.
![]() |
Efast um gagn sameiningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.