3.10.2012 | 20:39
Sjómannadagsblað Grindavíkur 2012 glæsilegt blað
Um daginn var ég staddur í Grindavík við skipaskoðun þegar einn grindvíkingur kom niður á bryggju og færði mér Sjómannadagsblað Grindavíkur 2012. Þessi ágæti vinur minn vissi að ég hafði verið að leita að blaðinu í nokkurn tíma, var búinn að fara í sjoppur á staðnum og þar var mér sagt að það væri löngu búið að taka blaðið úr sölu.
Sjómannadagsblað Grindavíkur 2012 er glæsilegt blað með fjölda greina, og prýtt miklum fjölda mynda. Blaðið er sjómönnum í Grindavik til sóma og auðvitað má þakka útgerðum og og öllum þeim sem styrkja útgáfu þess með auglýsingum og styrktarlínum, án þeirra væri ekki hægt að gefa út svo glæsilegt blað. Það er virkilega gaman að lesa margar af þeim greinum sem blaðið geymir.
Ritstjóri Sjómannadagsblað Grindavíkur Kristinn Benidiktson blaðamaður er látinn.
Emil Páll skrifar um Kristinn hér: emilpall.123.is/blog/2012/06/24/619384
Athugasemdir
Falleg skrifin þín, Sigmar. Pabba hefði þótt vænt um að heyra þau, en hann lifði fyrir útgáfuna og mætti klukkutíma of seint í blóðgjöf til að nálgast blaðið í prentun. Hann hafði þá sjálfur "eitthvað" að lesa upp á spítala. Pabbi leit aldrei á sig sem sjúkling. Það er vonandi einhver áhugamaður um sjómennsku taki við keflinu að ári liðnu.
Með vinsemd og virðingu,
Rakel Kristinsdóttir
Rakel Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 4.10.2012 kl. 00:06
Sæll Sigmar,
Þakka þér fyrir falleg skrif um verk bróður míns sem hefði orðið 64 ára í dag ef hann hefði fengið að lifa lengur.
Tek eftir því að þú ert Vestmannaeyingur en við systkinin áttum mikla tengingu við Eyjar, amma okkar og afi bjuggu þar ásamt föðursystur okkar og hennar fjölskyldu. Þau bjuggu við Vesturveg 12, eða á Lundi eins og húsið var jafnan kallað, bróðir minn bjó þar þegar hann kom á vertíðar ungur maður. Jonni frændi minn var að upplýsa mig um að þú hafir átt heima við hliðina á Lundi og þið verið æskufélagar, svona er nú heimurinn oft lítill.
Kveðja,
Steinunn M Benediktsd.
Steinunn M Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 4.10.2012 kl. 09:02
Sæll Simmi
Sammála flott blað hjá Grindjánunum.
Fékk þennan póst um daginn ef einhvern vantar gömul sjómannadagsblöð.
Sælir,Sirrý heiti ég og er með gömul Sjómannablöð Vestmannaeyja til sölu.Ef þú veist um einhvern sem hefur áhuga þá máttu benda á mig.Blöðin sem ég hef eru eftirtalin ártöl. 19591960196319641966-19681971-19721975-19771978 = 2 blöð1979 = 2 blöð19801981 = 2 blöð1982 = 2 blöð19831984 = 2 blöð19851986 Bestu kveðjur,SirrýS:567-5760póstfang ppsirry@simnet.is
Valmundur Valmundsson, 4.10.2012 kl. 14:02
Heilar og sælar Rakel og Steinunn og takk fyrir innlit og athugasemdir. Já Kristinn var góður penni og stóð sig vel sem ritstjóri Sjómannagagsblaðs Grindavíkur. Það er mikil vinna og ekki vandalaust að vera ritstjóri Sjómannadagsblaðs, það þekki ég sjálfur þar sem ég sá um Sjómannadagsblað Vestmannaeyja í mörg ár. Það er líka svo mikilvægt fyrir sjómenn að halda úti Sjómannadagsblöðum til að kynna starf sjómanna og þeirra sem þeim tengjast. Kristinn Benediktsson var auðsjáanlega meðvitaður um þetta og þess vegna vandaði hann sig við útgáfu þess, það er ómetanlegt að eiga slíka menn að þegar sótt er að sjómönnum og starfsheiðri þeirra. Sjómenn eiga eftir að sakna hans og verka hans síðustu ára.
Kristinn er maður sem ég hefði viljað kynnast og ræða við um útgáfu Sjómannadagsblaða. En því miður er hann látinn aðeins 63 ára blessuð sé minning hans.
Það er rétt Steinunn að við Jonni erum æskufélagar og hann átti heima á Lundi og ég á Sunnuhvoli. Hvð hétu afi þinn og amma Steinunn og hver voru nöfnin á þessu fólki sem þú nefnir?
Kær kveðja til ykkar
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 5.10.2012 kl. 18:05
Heill og sæll Valmundur og takk fyrir þessar upplýsingsr. Ég er oft spurður um það hvort til séu eldri Sjómannadagsblöð Vestmannaeyja. Nú getur maður bent á Sírri.
Takk fyrir þetta.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 5.10.2012 kl. 18:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.