Tvær forystukonur kjörnar heiðursfélagar SVFÍ 1984

Slysavarnarkonur heiðraðarÁ 20. landsþingi Slysavarnarfélagsins sem haldið var í Vestmannaeyjum 18. til 20. maí 1984 voru tvær forustukonur úr svd Eykyndils kjörnar heiðursfélagar Slysavarnarfélags Íslands, þær Anna Halldórsdóttir og Sigríður Björnssdóttir.

Báðar höfðu þær lengi verið í forustusveit svd Eykyndils og báðar höfðu þær gengt forustu í félaginu.

Haraldur Henrýsson þakkaði þeim við þetta tækifæri vel unnin störf að slysavarnarmálum um leið og hann afhenti þeim heiðurskjöl til staðfestu á kjöri þeirra sem heiðursfélaga. Voru þær hylltar af þingheimi með langvinnu lofataki.

Mynd t.f.v: Sigríður Björnsdóttir Haraldur Henrýsson, forseti SVFÍ og Anna Haraldsdóttir, þær halda þarna á heiðurskjölum sínum.

Eykyndilskonur hafa áorkað miklu í öryggismálum sjómanna í Vestmannaeyjum og víðar, væri fróðlegt að taka það saman og byrta í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja þarsem það á heima, þær eiga því skilið að nafni þeirra sé haldið á lofti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband