14.3.2012 | 22:54
Herjólfur siglir ekki
Herjólfur siglir ekki
Eitt af því sem kemur daglega í vinnu tölvuna mína er fréttir af fjölmiðlavaktinni, þetta er fréttir sem safnað hefur verið saman af flestum stærri fjölmiðlum landsins, borga fyrirtæki fyrir þessa þjónustu. Þetta getur verið ágætt þegar starfsmönnum langar að fylgjast með fjölmiðlaefni sem tengist þeirra vinnu. Það sem fær mig til að blogga um þessar fréttir af fjölmiðlavaktinni er að þarna koma endalausar fréttir af Herjólfi og þá oftast neikvæðar t.d. verið að tilkynna að feldar séu niður ferðir, meira sega verið að tilkynna að búast megi við veltingi á leiðinni .
Búið er að fella niður að mér er sagt 11 ferðir frá áramótum, vegna veðurs.
Ég er ekki að gera lítið úr þeim slæmu veðrum sem gengið hafa yfir landið í vetur en ég hugsa oft aftur í tíman þegar við vorum á gamla Herjólfi, þar sem örsjaldan féllu úr ferðir, kannski tvær til þrjár á ári og stundum vegna þess að ekki var fært landleiðina frá Þorlákshöfn til Reykjavíkur.
Herjólfur sem nú gengur á milli lands og Eyja er 70,7 m langur og er 2222,41 Brl. Það er öflugt skip með tvær aðalvélar og vel búið.
Herjólfur sem áður gekk á milli lands og Eyja var 57,13 m langur og 1038,0 brl. og var aðeins með eina aðalvél þannig að það skip var ekki nærri eins vel búið hvað varðar öryggi. Það má því velta því fyrir sér hvort það hafi verið mikið vit í því að vera að sigla á milli í aftaka veðrum á því skipi.. En ég man vel eftir að pressan var mjög mikil að ekki væri sleppt úr einni einustu ferð, að vísu þótti nóg á þeim tíma að fara eina ferð á dag yfir vetrartímann, og oftast var það í björtu.
Elsti Herjólfur
Dæmi frá 09.03.2012:
Fyrri ferð Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs fellur niður í dag vegna ölduhæðar og veðurs
Fyrri ferð Herjólfs fellur niður í dag
Fyrri ferð Herjólfs frá Eyjum til Þorlákshafnar fellur niður vegna mikillar ölduhæðar á siglingaleiðinni
Fyrri ferð Herjólfs föstudaginn 9. mars fellur niður vegna ölduhæðar og veðurs. Nú er 5 m alda við Landeyjahöfn, 8,4 m við Surtsey og 6,1 m við Grindavík og hefur hækkað um einn metra síðastliðna klukkustund |
Farþegar sem fara með Herjólfi frá Vestmannaeyjum kl. 15.30 eða frá Þorlákshöfn kl. 19.15 þurfa að búast við töluverðum veltingi
Fréttaábending: Ferð Herjólfs fellur niður Fyrri ferð Herjólfs frá Eyjum til Þorlákshafnar fellur niður vegna mikillar ölduhæðar á siglingaleiðinni. Horfur eru ekki góðar um að hægt verði að fara síðari ferðina í dag en það skýrist um eða upp úr hádegi.. Fréttamaður: Gissur Sigurðsson |
Fréttaábending: Fyrri ferð Herjólfs fellur niður Fyrri ferð Herjólfs í dag sem átti að, Herjólfur átti að leggja af stað klukkan 8, hún fellur niður vegna ölduhæðar og veðurs.. Fréttamaður: Kristján Sigurjónsson |
Fréttaábending: Ekki góðar horfur með seinni ferð Herjólfs Fyrri ferð Herjólfs frá Eyjum til Þorlákshafnar var felld niður vegna mikillar ölduhæðar á siglingaleiðinni. Horfur eru ekki góðar á að hægt verði að fara síðari ferðina í dag en það skýrist núna um eða upp úr hádeginu. . Fréttamaður: Lóa Pind Aldísardóttir |
Herjólfur mun sigla fyrri ferðina frá Eyjum á morgun, laugardag, kl. 8 og frá Þorlákshöfn kl. 11.45
Staðfest brottför Herjólfs frá Eyjum er klukkan 15:30 og 19:15 frá Þorlákshöfn. Farþegar mæti sem fyrr 30 mínútum fyrir brottför
|
Athugasemdir
Sæll meistari Sigmar.
Það gat nú oft verið ansi skrautlegt að sigla með gamla milli rvk og eyja og ástandið ansi misjafnt á farþegum og það kom fyrir að það var ekki gos sem lak niður úr bekkjunum uppi í sal,og stundum varð maður að krækja sig fastann í kojunni til að toll í henni,En gamli hafði góða sál og maður treysti honum í öllum veðrum og stundum reyndist siglingin vera ein samfeld gleðistund með söng og raddbandaolíu sem flaut um kverkar og sinni.
Ég hef allavega alltaf saknað hans,þó maginn hafi stundum haft aðra skoðun.
Kv Laugi
Sigurlaugur Þorsteinsson, 15.3.2012 kl. 20:30
Heill og sæll Laugi og takk fyrir innlit og athugasemd.
Já þarna ertu að tala um elsta Herjólf, hann var örugglega gott sjóskip eins og hinir tveir og með tvær aðalvélar og skrúfur. Það var aftur á móti ekki mið Herjólfur sem ég var mest á, hann hafði aðeins eina vél og var því strax og hann var byggður mjög gamaldags skip og langt frá því að vera öruggt farþegaskip. En gæfa fylgdi honum eins og öllum þessum skipum, manni þótti vænt um öll þessi skip
.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 15.3.2012 kl. 21:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.