Enn og aftur sanna þyrlur LHG mikilvægi sitt

TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti veikan mann til Vestmannaeyja um kl. 16 í dag. Sjúkraflugvél Mýflugs hafði þá um stund reynt að lenda í Eyjum en varð frá að hverfa vegna veðurs. Þyrlan lenti með manninn í Reykjavík um kl. 18. Maðurinn var svo fluttur á Landspítalann við Hringbraut.

IMG_3620 copyMyndina af TF- GNÁ tók vinur minn Ómar Kristmannsson.

Enn og aftur kemur í ljós að það eru þyrlur LHG sem koma til bjargar þegar allt annað brekst, og þá þurfa þær að vera öflugar eins og þyrla LHG TF-GNÁ.

Þá má einnig minna á að um borð í þessum þyrlum eru þrautþjálfaðir flugmenn og flugliðar sem gera það að verkum að þetta eru alvöru björgunartæki.

Vonandi ber okkur íslendingum gæfa til þess að kaupa fleiri þyrlur þannig að það verði ávalt til taks nægilega margar vélar sem hægt er að senda til bjargar hvort sem það er til sjós eða lands.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er með ólíkindum kæruleysi stjórnvalda gagnvart Landhelgisgæslunni og mikilvægi hennar bæði til sjós og lands.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.3.2012 kl. 12:21

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er ekki hægt að nota eitthvað af þessu MÚTUFÉ frá ESB til að kaupa þyrlu?????????????

Jóhann Elíasson, 11.3.2012 kl. 15:28

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Ásthildur og jóhann, já maður skilur illa þankagang þessarar ríkisstjórnar aðsjá ekki mikilvægi þessara björgunartækja.

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 11.3.2012 kl. 18:07

4 Smámynd: Valmundur Valmundsson

Sammála Simmi. Eins og segir í fornum skræðum; ,,Skömm þeirra mun uppi meðan land er byggt".

Valmundur Valmundsson, 16.3.2012 kl. 14:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband