Ótrúlegar myndir af Loðnumiðunum

Brotsjór 1 Þorbjörn VíglundssonBrotsjór 2 Þorbjörn Viglundsson

 Þessar myndir tók Þorbjörn Víglundsson 2. stýrimaður á Júpiter ÞH . Myndirnar sýna hafölduna ganga yfir skipið og brotna á því. Það er ekki oft sem menn ná svona myndum, en þarna hefur verið veruleg hætta á ferðum. Það er eins gott að vatnsþéttar hurðir og umgangsop haldi og allt sé vel skálkað aftur, ekki vari gott að fá svona brotsjó á rúður eða aðra veika staði skipsins.

Þorbjörn Viglundsson á heiður skilið að leyfa fólki að sjá á myndum hvernig sjómennskan getur verið á veturna, og kannski ekki ástæða fyrir þá sem í landi eru að öfunda sjómenn af þeim launum sem þeir hafa fyrir sína vinnu, oft við óhemju erfiðar aðstæður eins og þessar frábæru myndir sína.

Ljósmyndirnar fann ég á Eyjafréttum.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þessi mynd ætti að vera á bókarkápu allra Hagtíðinda.
 
Öllum gróða fylgir greinilega viss áhætta

Þetta er alveg geggjað!

Kærar þakkir fyrir myndirnar
- og aflann, Júpiter!
 
Engin áhættutaka, engin velmegun

Gunnar Rögnvaldsson, 24.3.2012 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband