29.2.2012 | 21:43
Mynd frá 1955 af hafnarköllum
Þessi mynd er frá árinu 1955 þegar unnið var að dýpkun innsiglingarinnar í Vestmannaeyjahöfn.
T.f.v: Óskar Gíslason Arnarhóli oft kendur við Betel, Einar Jónsson Kalmanstjörn, Ólafur Ólafsson lengi skipstjóri á Létti, Ásbjörn Þórðarson Sólheimatungu við Brekastig, Egill Árnason Hólagötu, Ársæll Sveinsson Fögrubrekku, Einar Jónsson Helgafellsbraut, Eivindur Þórarinsson verkstjóri, Sölvi Friðriksson Batavíu lengi kafari, Vigfús Ólafsson Gíslholti kennari í Eyjum, og Magnús Grímsson Felli.
Athugasemdir
Sæll Sigmar.
Þarna er allavega einn frændi minn Vigfús Ólafsson, sonur Stínu systur ömmu minnar Steinunnar.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 4.3.2012 kl. 00:26
Sæl Guðrun María Takk fyrir innlitið, já Fúsi kennari var skemmtilegur kall og góður sögumaður.
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 4.3.2012 kl. 12:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.