21.12.2011 | 21:16
Vitleysingaskattur ????
Þrefaldur næst í Víkingalottói
Innlent | mbl.is | 21.12.2011 | 20:43
Enginn var með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu að þessu sinni og verður potturinn því þrefaldur næsta miðvikudag. Stálheppinn áskrifandi var með allar fimm tölurnar í réttri röð í Jókernum og fær hann tvær milljónir í vinning.
Vitleysingaskattur
Það er merkilegt hvað við íslendingar erum duglegir að eyða peningunum okkar í happadrætti, skafmiða, spilakassa, lengjur, Lottó og hvað þetta allt heitir? Sjálfur er ég engin undantekning en hef haldið mig við Lottóið og líknarfélögin.
Ég er einn af þeim sem hef spilað í lottóinu meira og minna frá því það byrjaði, þó með smá hléum, en það hefur lítið sem ekkert gefið til baka, einu sinni fékk ég þó 35,000 krónur og síðan er maður að fá þessa smávinninga sem maður eyðir strax í nýjan lottómiða.
Það hefur vakið furðu mína hve oft lottópotturinn verður tvöfaldur og þrefaldur og þaðan af stærri, það ætti að segja manni og sannfæra, hvað það er raunar litill möguleiki að hreppa þessar miljónir sem við öll Lottóspilarar erum alltaf að bíða eftir.
Ef maður kaupir í viku hverri tíu raðir með jóker á 1200 kr, þá kostar það á ársgrundvelli 62000 kr. Það eru margir sem kaupa Lottó í hverri viku og sumir spila bæði í Víkinga og laugardagslottóinu. Það er því dálagleg upphæð sem fólk eyðir í lottómiða, því margir kaupa fyrir mun stærri upphæðir en hér er um talað og eru einnig með miða í öðrum happadrættum.
Það er kannski rétt sem margir skinsamir menn og konur halda fram að þeir einir græði sem eyði ekki peningum sínum í Lottó né happadrættismiða.
Fyrir nokkrum árum var ég að koma út úr sjoppu sem seldi Lottómiða, þarna var mikið af fólki að kaupa miða því potturinn var þrefaldur, margir keyptu miða fyrir stórar upphæðir eins og gengur, og ætluðu auðvitað allir að hreppa þann stóra.
Í dyrunum á sjoppunni hitti ég vin minn og gamlan skipsfélaga sem ég vissi að keypti aldrei Lottó né aðra happadrættismiða.
Ég hélt á lottómiðanum í hendinni og spurði hann hvort hann ætlaði ekki að kaupa lottó Því hann væri þrefaldur? Hann hló að spurningunni og sagði: Veistu hvað hún móðir mín sagði um happadrætti og Lottó?
Nei sagði ég. Hann kom alveg að mér og hvíslaði: Hún sagði að þetta væri einfaldlega vitleysingaskattur sem allir borguðu með glöðu geði þó þeir vissu að þeir fengju ekki neitt í staðinn í 99,9 % tilfella, og ég hef ekki áhuga á að vera í þessum hópi, það er mitt mottó að kaupa aldrei Lottó. Hann gekk síðan inn í sjoppuna og skyldi mig eftir undrandi og orðlausan, sem ekki kemur oft fyrir mig.
Eftir því sem árin líða og ég kaupi fleiri Lottómiða, sé ég alltaf betur og betur að þetta er alveg hárrétt hjá þeirri gömlu, happadrætti og Lottó er hreinn vitleysingaskattur sem við borgum möglunarlaust þó við vitum innst inni að við fáum ekki neitt í staðinnnema auðvitað styrkjum við gott málefni. Kannski læt ég verða af því einhvern tíman að hætta þessari vitleysu.
Sigmar Þór Sveinbjörnsson
Þrefaldur næst í Víkingalottói | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Sigmar, já og hugsaðu þér að þessir peningar gætu verið eftir tíu ár 1,142000, með því að spila bæði lottóin vikulega, eftir tuttugu ár eru þetta 2,284000, án vaxta sem við myndum auðvita hafa peninganna á.
Margur verður af aurum API.
Kær kveðja frá Eyjum.
Helgi Þór Gunnarsson, 21.12.2011 kl. 21:59
Heill og sæll Helgi, já það er ekki neinar smáupphærir sem margir setja í Lottó og allir ætla að ná þeim stóra. En það eru í raun ótrúlega litlar líkur á að vinna einhverjar upphæðir í þessum leik. Þess vegna er það því miður rétt að kalla þetta vitleysingaskatt.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 21.12.2011 kl. 22:33
Mikið sammála ykkur báðum/Kveðja
Haraldur Haraldsson, 22.12.2011 kl. 00:01
Heill og sæll Haraldur og takk fyrir innlitið og gleðileg jól.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 22.12.2011 kl. 22:16
Sælir drengir og Gleðilega hátið.
Mér þætti lífið ansi dapurt ef ekki væri von um eitthvað betra í framtíðinni og ættla því að halda áfram að greiða þennann aulaskatt,ef ekki til annars en að skammast yfir því að fá aldrei vinning.
Hafðu þökk fyri skemmtilega pistla á arinu sem er að líða meistari Sigmar og vonandi heldur þú upptekum hætti næsta ár.
Með góðri kveðju um farsæla framtíð.
Laugi sem borgar vitleysingjaskattin brosandi sem og alla hina skattana.(eða er það bara verið að bíta á jaxlinn sem kemur út eins og bros)
Sigurlaugur Þorsteinsson, 28.12.2011 kl. 17:00
Helgi Þór Gunnarsson, 28.12.2011 kl. 20:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.