19.12.2011 | 23:15
Falleg eru norðurljósin séð frá Vestmannaeyjum
Heimaklettur og innsiglingin inn í Vestmannaeyjahöfn. Stafkirkjan á Skansinum.
Blátindur, Smáeyjar og himininn logandi í norðurljósum.
Séð yfir Suðureyjarnar og mikil norðurljós, þetta eru flottar myndir sem Heiðar Egilsson tók á dögunum.
Vinur minn Heiðar Egilsson fór út eina nóttina um daginn þegar hann vissi
að það væri mikið af norðurljósum og skyggnið var gott.
Það var vel þessi virði sagði Heiðar að vera að til kl. 3 um nóttina við myndatöku,
og hann sendi mér hér nokkur sýnishorn af þeim myndum sem hann tók.
Hafði þökk fyrir þetta Heiðar Egilsson
Athugasemdir
En hve þetta eru frábærar myndir, þakkaðu vini þínum fyrir mína hönd.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.12.2011 kl. 14:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.