27.11.2011 | 22:07
Heimaey eftir Sveinbjörn Á. Benónýsson múrara og skáld.
Kvæðið Heimaey er eftir Sveinbjörn Á. Benónýsson múrara og skáld, myndin hér að ofan er af honum.
Heimaey
Eyjan mín fagra í úthafi bláu
með algrænum túnum og fjöllunum háu,
eldsteyptum dröngum og blómskrýddum bölum
brekkum og lautum, hlíðum og dölum.
-
Þig munum vér ávalt og morgnana þína,
er móar og grundir í daggperlum skína
og gleymum þér aldrei í gullvefjartrafi,
þá glampandi röðullinn stigur úr hafi.
-
Vér dáum þig öll, sem að eigum hér heima.
Annað þó flyttum vér seint myndum gleyma
draumfegurð þinni í litbrigðaloga,
er lækkandi kvöldsólin stafaði voga.
-
Jafnt, þegar brimið á brjóstum þér svellur
og báran með hægð upp að ströndinni fellur,
Þú hrífur og eggjar hvern hálfvaxinn snáða
á hafið að sækja, til starfa og dáða.
-
Hér hefur faðirinn hnigið í valinn.
Við hættur var sonur og dóttirin alin.
Harmþrungin móðir sem hetja að verki
hóf þá upp störfin og bónda síns merki.
-
Þú breiðir út faðm móti börnunum öllum,
hvort berast um sæ eða ganga í fjöllum,
og lykur þau armi og iðgrænum feldi
að afloknu verki á síðasta kveldi.
-
Svo bið ég þú verðir um aldur og ævi,
Eyjan mín fagra í hrinjandi sævi,
veitul og gæði þeim börnum, sem búa
við barm þinn, á Guð sinn og landið sitt trúa.
-
Höfundur Sveinbjörn Ágúst Benónýsson
Athugasemdir
Sæll Sigmar.
Yndislega fallegur kveðskapur.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 28.11.2011 kl. 01:47
Heil og sæl Guðrún María og takk fyrir innlitið, já Sveinbjörn hefur verið frábært skáld. Töluvert er til af kvæðum og vísum eftir hann viða í vestmannaeyjablöðum og bókum. Ekki veit ég til þess að hann hafi gefið út Ljóðabók. En það væri gaman að taka saman þessi ljóð hans og gefa út í bók.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 6.12.2011 kl. 14:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.