Fáninn okkar

  images[1]Einar Sigurbjörnsson

Einar Sigurfinnsson F. 14. sept. 1884 D. 17. maí  1979.Einar bjó um tíma í Vestmannaeyjum með konu sinni Raghildi Guðmundsdóttir og starfaði þá m.a. hjá Póst og síma.

Fáninn okkar, er eftir Einar Sigurfinnsson

Fáninn okkar

-

Fáninn blaktir hátt við hún.

Á helga krossi sigurrún

merki þetta minnir á

mann hvern er það kann að sjá.

-

 Þrílitt merkið minnir á

og mestan leyndardóm vill tjá

um þrenning helga í himnadýrð

er hvorki verður séð né skýrð.

-

Hvert sem landan báran ber

blæjan hreina minna fer

á blámann heiða, bjarta mjöll

og bjarmann elds er loga fjöll.

-

Tvílitur mun tákna kross

trúarinnar dýrsta hnoss

blóðgan sveita, benja tár

brotin læknuð hvít sem snjár.

-

Hvar sem blæjan blaktir hrein

bæn til himins stígur ein:

Helguð krossins hreinni glóð

hátt æ stefni Íslands Þjóð.

-

 Fyrsta sumardag 1960.

 Einar Sigurfinnsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband