23.10.2011 | 17:23
Enn ein bátur sekkur í höfn
Báturinn Salka GK-79, sem er 33 tonna trébátur, sökk í Sandgerðishöfn í dag.
Slökkvilið Sandgerðis fékk tilkynningu upp úr klukkan tvö í dag um að mikill leki væri kominn að Sölku. Er slökkviliðið kom á vettvang var báturinn sokkinn.
Orsök óhappsins er talin vera sú að stálbáturinn Rán GK-91 hafi rekið stefni í síðu bátsins þegar hann var að leggjast að. Saka sökk fljótlega eftir það.
Kafaraþjónusta Sigurðar mun vinna að því að koma Sölku aftur á flot.
Það er orðið bísna algengt að bátar sökkvi í höfn, stutt er síðan bátur sökk í höfninni í Njarðvík, og ef ég man rétt þá sökk bátur eða bátar í Reykjavíkur höfn fyrir ekki svo löngu. Að visu eru þetta oft bátar sem lengi hafa legið í höfn þar sem þeir eru verkefnalausir hafa engar aflaheimildir og meiga því ekki róa.
Myndin sem fylgir þessari frétt segir mér að minsta kosti annar losunarbúnaðurinn fyrir gúmmíbátinn hefur virkað og losað gúmmíbátinn. En Salka GK 79 hefur verið með tvo gúmmíbáta og þá er spurnig hvar hinn báturinn er ? Kannsi hefur verið búið að fjarlæga hann þegar myndin er tekin. Eða dýpið sé ekki nógu mikið til að hann losni frá skipinu.
Þetta er hundleiðinleg sjón að sjá bát sokkinn með maturstoppa upp úr sjó.
Athugasemdir
Salka er GK 79 ekki GK 97
Emil Páll Jónsson (IP-tala skráð) 23.10.2011 kl. 22:54
Heill og sæll Emil, já þetta er rétt hjá þér, ég laga þetta hið snarasta.
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 24.10.2011 kl. 08:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.