Kvæði eftir Halldór Kolbeins frá 1957

SR Halldór KolbeinsHalldór Kolbeins var prestur Vestmannaeyinga frá 1945 til 1961. Hann var fæddur að Staðarbakka í Miðfirði 16. febrúar 1893 og lést 29. nóvember 1964. Foreldrar hans voru séra Eyjólfur Kolbeins Eyjólfsson á Staðarbakka og kona hans Þórey Bjarnadóttir. Eiginkona Halldórs var Lára Ágústa Ólafsdóttir. Þau áttu saman sex börn, auk þess að ala upp tvö fósturbörn.

Þetta kvæði er eftir sr. Halldór Kolbeins og er í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja frá 1958     

 

 

Yfir höfin fleyin fara

Kvæði tileinkað sjómönnum 

Yfir höfin fleyin fara

fara og eru Drottins hönd,

faralsæld mikla og fremstu gæfu

fá þau sótt í önnur lönd,

flytja vörur, menning miðla,

merla gæðum Íslands strönd,

fyrir blessun guðs þau geta

glætt og aukið kærleiksbönd.

 

Björg í hafið sjómenn sækja,

svo vér hljótum daglegt brauð,

þjóðin verði hraust og heilbrigð

hafi sjálfstæð- þarfan auð.

Gefi henni Guð að helga

göfgu marki þessa björg.

svo að Ísland sigur vinni,

sundrist burt torfæran mörg.

 

Helga, Drottinn, hafsins þegna,

heill þeim veit ég lát þá sjá

blessast alla iðju sína.

Elsku vora bæn og þrá

lát sem engla ljóssins vaka.

Líkn þú veit, bæg slysum frá.

Skip lát koma heil til hafnar,

heilags anda styrk oss ljá.

 

Ástvinunum yfir vak þú,

allar bænir sjómanns heyr.

Blessa þú hans börn og konu,

birt þeim alltaf meir og meir

af þinni náð og þinni visku.

Þeim veit gjafir blessunar.

Send þeim allar auðnu sólskin

eilífbjartar miskunnar.

 

 

 Ofanleiti í Vestmannaeyjum 26. maí 1957Halldór Kolbeins

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband