Myndir frá Færeyjum teknar 1980

Færeyjar 1Færeyjar 2

Allar myndirnar eru teknar í Færeyjum árið 198o í ferð þegar Vita og hafnarmálastofnun heimsótti Færeyjar þar voru starfsmenn að kynna sér hafnarframkvæmdir í Færeyjum á þeim tíma.

Því miður þekki ég ekki þá staði þar sem myndirnar eru teknar, en gaman væri ef einhver sem skoðar bloggið mitt þekkir þarna til þessara staðaværi, þá þætti mér vænt um að fá athugasemir.

Færeyjar 4Færeyjar 6

 

Færeyjar 7Færeyjar 8

 

Færeyjar 10Færeyjar5

Færeyjar 12  hópmynd

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 færeyjar 11

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurlaugur Þorsteinsson

Sæll Sigmar.

Ég kannast mæta vel við Bröyt gröfuna,vann á henni í nokkrar vikur fyrir Vegagerðina í Færeyjum,heljarinnar öflugt tæki,Kocumstrukkurinn frá E,Phil og sön er einn af mörgum sem notaðir voru bæði hérlendis ,Grænlandi,Færeyjum og e´g held að einn eða tveir séu enn til hjá Ístak,Guðjón nokkur úr eyjum var með þá í fóstri og fékk nafnið Gauji Kokkapabbi.Ég held að mynd 5 og 6 séu frá Skopun á Sandey,en það var heimabær konunar minnar og ef rétt er þá þurfti að endurgera höfnina 4 sinnum til að hún yrði endnanlega góð,gömlu mennirnir í Skopun og á Sandi sögðu frá upphafi að höfnin yrði ekki góð eins og hún var byggð upphaflega og svo fór,ef farið hefði verið að ráðum þeirra hefði eins og gert var að lokum,hefði mátt spara sér nokkrar millur í endurgerð 4sinnum,Hljómar kunnuglega (Bakkahöfn)

Kv Laugi

Sigurlaugur Þorsteinsson, 18.9.2011 kl. 17:29

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Laugi og takk fyrir innlitið og upplýsingarnar.Það er með ólíkindum hvað þú hefur komið víða við um dagana. Gaman að fá þessar upplýsingar hjá þér um Færeyjar, og vonandi koma fleyri sem þekkja til á þeim myndum sem sem vantar texta. Ég þekki nokkra á hópmyndinni en er að reyna að fá upp fleiri nöfn. Þekkir þú einhverja á þessari mynd? Hvað varðar höfnina í Bakkafjöru þá hef ég trú á að þar finnist lausnir eftir að reynsla er komin á höfnina. Ég held samt og hef alltaf verið þeirrar skoðunar að við verðum að vera með gott og öflugt skip sem getur siglt til Þorlákshafnar þegar ófært er í Bakkafjöru.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 19.9.2011 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband