Vestmannaeyjar séð frá sjó

IMG_1320

 

Þessar fallegu myndir af Eyjum teknar frá sjó  tók Egill Egilsson og sendi mér. Það er svolítið öðruvísi  að virða fyrir sér Vestmannaeyjar svona frá sjó. Þarna sést inn í opið  Þrælaeiði til vinstri Heimaklettur ( Dufþekja ) þá kegur Klif, Stóri og Litli Örn svo eithvað sé nefnt. Flott mynd sem er tekin í rjómablíðu.

Það er reyndar ekki alltaf svona veður þegar sjómenn taka land og horfa til lands eins og myndirnar hér neðst  sýna. þær myndir  tók Torfi  Haraldsson vinur minn.

 

 

 

IMG_1345

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Torfi 3

 

 Myndir Torfa  af Vestmannaey VE 444 á svipuðum slóðum eða í Faxasundi eins og sjómenn kannast við. Skipið er að koma þarna inn  í skítbrælu og haugasjó. 

 

 

 

 

 Torfi 2


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Sigurðsson

" Ef komið er af hafi, hún heilsar hrikaleg. Því hrjúf hún er en þó svo dásamleg." Guðs blessuð Heimsey. Flottar myndir Simmi.

Óskar Sigurðsson, 10.9.2011 kl. 01:03

2 Smámynd: Sigurlaugur Þorsteinsson

Sæll meistari Sigmar.

Það er mjög svo fallegt að sjá eyjarnar rísa úr sæ á lognkyrrum og sólríkum sumar morgni og þú kannast eflaut við tifinninguna þega menn stóðu frami í stefni og fylgdust með er eyjarnar nálguðust,eins þegar komið var úr hafi í snarvitlausum veltingi og roki,þá fór maður að spegulera í því hvernig skyldi nú innsiglinginn vera,en það var fyrir gos,annars fannst mér það alltaf grátbölvað að húka á vaktinni og horfandi heim á eyju á laugardagskveldi og landkrabbarnir að gera sig til á ball í Höllinni,og einu sinni kom Valdi í Bragganum aftu í til min og eftir að hafa fullvissað sig um að Gunnar væri sofandi urðum við sammála um að það væru komnar bévaðar gangtruflanir í Kötuna og við yrðum bara að hætta og fara í land að gera við,held að Gunnari hafi langað í land því hann lét ekki bíða eftir sér með að hífa og taka stímið og furðulega lítið var spurt út í "bilunina" og ekkert minnst á hana á mánudagsmorgunin er ræst var út aftur.

Kv Laugi

Sigurlaugur Þorsteinsson, 10.9.2011 kl. 13:07

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Óskar skáfrændi og takk fyrir innlitið já Eyjarnar eru og verða alltaf bæði fallegar, hrikalegar og dásamlegar. Bið að heilsa þér og þinum og svo náttúrulega á safnaðarfundinn á mánudaginn.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 11.9.2011 kl. 21:57

4 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Laugi og takk fyrir innlitið og athugasemdina, alltaf jafn gaman að lesa þínar athugasemdir og innskot í gömlu góðu dagana. Kannast við flest af þessu sem þú minnist á frá sjómannsferlinum, við höfum sjálfsagt upplifað þetta svipað þessir peyjar sem stunduðu sjó á þessum árum. Nema þetta síðasta ekki hefði verið hægt að hafa svona áhrif á þá fiskiskipaskipstjóra sem ég var með sem voru reyndar ekki margir, maður passaði sig frekar á að reyna að leyna áhuganum á að fara á ball  .

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 11.9.2011 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband