Hanka grjót og poka netakúlur

Veiðarfæragrðar VM

Einu sinni var ! 

Hér er gömul mynd af Guðjóni Magnússyni og Hallgrími Þórðarsyni netagerðarmönnum  fyrir utan Veiðafæragerð Vestmannaeyja að hanka grjót.

 Í baksýn má sjá gamla vörubílaþvottaplanið þar sem nú er aðkeyrsla að innkeyrslubrú Herjólfs.

 

 

 

 

 

Veiðarfærageðin Kúlur

 

 Hér er aftur á móti verið að poka netakúlur en þær voru  notaðar á þorskanet ásamt netasteinunum.

Á myndinni er Kjartan Bergsteinsson loftskeytamaður, litli peyinn er Þorvaldur Kristleifsson konan á myndinni et Ingveldur Magnúsdóttir.

Myndirnar eru úr Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 1997 og eru með grein um Veiðafæragerð Vestmannaeyja sem Grímur Gíslason skrifaði í blaðið.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurlaugur Þorsteinsson

Sæll Sigmar.

Þessa bryggjumynd kannast ég mæta vel við,enda var ég öllum stundum í austari-slippnum hjá afa,eins þetta með helv,,,,, kúlurnar,maður þurfti að leggja þær til eins og steinana,frá borðstokk inn að keys og síðan í lögninni þá þurfti að henda þeim út eins og steinunum svo þær brotnuðu ekki í lögninni,tómt vesen,þetta var notað á Valnum frá Neskaupstað vertíðina 67 minnir mig,en þá réri hann frá Grindavík og lagði upp hjá Söltunarstöð Magnúsar og Sverris,en þar réri ég hálfa vertíð í staðin fyrir einn sem gafst upp vegna of mikillar jafnvægistilfinningar,ég þjáðist all verulega af þessu sama alla mína sjómanstíð.

Kv Laugi 

Sigurlaugur Þorsteinsson, 9.9.2011 kl. 16:28

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Laugi og takk fyrir innlitið. Já þær voru leiðinlegar kúlurnar sérstaklega ef það var bræla, en ekki man ég eftir að það hafi þurft að henda þeim út. Ég man vel eftir því hvað það var mikil breyting þega blessaðir hringirnir komu í stað glerkúlanna . En það tók nokkur ár að útrýma helvít... kúlunum og í restina voru þær notaðar tvær og tvær á endanetin á trossunum.

Hvenær eigum við að fá okkur kaffi saman í Kaffivagninum??

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 9.9.2011 kl. 22:34

3 Smámynd: Sigurlaugur Þorsteinsson

Sæll meistari.Sigmar

Það er annaðhvort á morgun sunnud eða helgina 1-3 okt alla hina dagana er ég að vinna,væri sko alveg til í að fá mér bryggjurúnt með viðkomu á Kaffivagninum.

Kv Laugi

Sigurlaugur Þorsteinsson, 10.9.2011 kl. 16:13

4 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Laugi, við stefnum á 1 til 3 október. Það er held ég lokað á sunnudögum í kaffivagninum er það ekki?

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 10.9.2011 kl. 20:57

5 Smámynd: Sigurlaugur Þorsteinsson

Sæll meistari Sigmar.

Jú það er flott.

Kv Laugi

Sigurlaugur Þorsteinsson, 10.9.2011 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband