4.9.2011 | 21:41
Glæsileg farþegaskip í Reykjavíkurhöfn
Ég fór í dag minn fasta bryggjurúnt. Í Reykjavíkurhöfn var þetta glæsilega farþegaskip sem er örugglega með þeim stærri sem sigla um heimsins höf.
Ótrúlega flott skip að sjá. Það væri gaman að vera þarna um borð svona eins og eina viku eða svo
Allt í lagi að láta sig dreyma
Þetta skip var einnig í Reykjavíkurhöfn, flott skip en örugglega mun eldra.
Athugasemdir
Númi kallinn á gífurlega mikið af myndum af skemmtiferðaskipum sem og öðrum skipum sem til borgarinnar hafa komið ja í þó nokkur ár. Hef einnig gaman af að taka myndir úr slippnum úr Reykjavík,og á slatta af myndum af skipum sem hafa verið þar í klössun,og úr Daníelsslipp.Númi kallinn er alin upp við höfnina allt frá árinu 1961 og til í dag,það er nú svo.
Númi (IP-tala skráð) 5.9.2011 kl. 00:33
Heill og sæll Númi og takk fyrir innlitið. Já ég er sammála þér að það er gaman að eiga myndir af skipum í slippnum og mörgum af þeim skipum sem koma til Reykjavíkur. Ég held að það séu fáar helgar yfir árið sem ég fer ekki bryggjurúnt þó mín vinna sem skipaskoðunarmaður fari mikið fram í höfnum og slippum landsins. Ég hef oftast myndavélina með og á því margar myndir af allavega skipum þ.á.m. mörgum farþegaskipum, seglskipum stórum og litlum, snekkjum og Kafbátum. Númi ert þú sjómaður ??
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 5.9.2011 kl. 22:21
Númi er fyrrverandi sjómaður. Búin að vera landkrabbi undanfarin 25 ár. Leið alltaf best á sjónum.
Númi (IP-tala skráð) 6.9.2011 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.