Lionsmenn á sjó á Dala Rafni VE

scan0012

 Myndirnar eru teknar fyrir allmörgum árum, áður en fiskveiðistjórnunarkerfið var sett á laggirnar. Þá fór Þórður Rafn Sigurðsson skipstjóri og útgerðarmaður á Dala Rafn með okkur Lionsmenn í fiskiróður til fjáröflunar fyrir Lionsklúbb Vestmannaeyja. Eins og myndirnar sína þá fiskuðum við mjög vel og styrktum þar með líknarsjóð klubbsins svo um munaði. Þetta væri ekki hægt í dag með allar þessar reglur um stjórn fiskveiða.

á 1. mynd eru t.f.v: Georg Tryggvason lögfræðingur, Georg Hermannsson kaupfélagsstjóri, Sigmar Þór Sveinbjörnsson stýrimaður og Þórarinn Sigurðsson rafvirkjameistari. Í brúarglugganum er Þórður Rafn skipsjóri.

Myndir hér fyrir neðan eru af  t.f.v: Georg Hermannsson, Georg Tryggvason hendir fiski í þvottakarið og Þórður Rafn Sigurðsson skipstjóri og útgerðarmaður bætir trollið. 

scan0028scan0035scan0033

 

scan0022scan0041

 Trollið tekið og þetta er ágætis hal hjá Þórði Rafn Skipstjóra og nú er að herða að pokanum og póka aflann inn á dekkið. Allir hjálpast að og þetta gekk bara mjóg vel þó ekki væru allir vanir sjómennskunni. Sem betur fer var rjómablíða og ekki hægt að vera sjóveikur.

scan0051scan0050

 

scan0023scan0036

 Ekki var til setunar boðið, nú var hafist handa við að gera að aflanum og koma honum í lestina.

Á lunningunni situr Ágúst Þórarinsson og hér fyrir neðan eru Georg T , Sigmar Þór og Georg H.

scan0047scan0046scan0040

 Eftir aðgerðina var sest niður í Lúkkarinn og við fengum okkur vel að borða á myndu hér fyrir neðan eru Georg T., Georg H. og Gústi í Mjölner. Þá er mynd af Þórarinn rafvirkja sem heldur þarna um saftflöskuna sem við notuðum út á hafragrautinnBlush.

scan0006scan0031

 

Hér eru sömu menn en sumir borðuðu meira en aðrir Smile

scan0058scan0005

 

scan0059

Verið að hífa sýnist mér þarna eru tveir að stýra vírunum inn á tromlurnar.

 scan0001-1

Arnfinnur Friðriksson og undirritaður í kaffipásu.

scan0014scan0016

Persónur og leikendur að koma upp á dekk. Hífa sagði kallinn og við hlíðum náttúrulega skipstjóranum.

scan0015scan0017

scan0018scan0027

'A næstsíðustu mynd eru t.f.v: Georg H. Georg T, Þórarinn og Þórður Rafn.

 Þetta vor skemmtilegir tímar þegar allir máttu veiða fisk sem á annað borð nentu því.

scan0038

 

    Þórður Rafn alvarlegur á svipinn í brúarglugganum á Dala Rafn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skemmtilegar myndir af sjómennsku í Vestmannaeyjum.  Minn karl var það einu sinni við sjósókn, man ekki alveg hvað báturinn hét Ísleifur 111 getur það verið? Það var kring um 1968- 70.  Elías Skaftason.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2011 kl. 23:57

2 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Ásthildur, það hefur líklega verið Ísleifur IV.  Nema þinn karl sé mjög aldraður, þá er möguleiki að hann hafi róið á Ísleif III???????????? Ísleifur IV var seldur upp á Selfoss, en sá fjórði var brenndur á þjóðhátíðabrennu 1975 eða 77, þá var hann búinn að liggja í slipp í mjög mörg ár.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 31.8.2011 kl. 20:47

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það hefur verið Ísleifur IV.  Minn karl er módel 44 eins og ég.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.8.2011 kl. 21:00

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Ásthildur og Sigmar, ég verð að leiðrétta sjálfan mig! En góðvinur minn ættaður frá Skógum hér í bæ, hringdi í mig og sagði mér allt um flakið sem var brennt á þ.jóðhátíðinni "77" En sá bátur hét Gísli J Johnsen.

kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 2.9.2011 kl. 12:48

5 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Ásthildur og Helgi og takk fyrir innlitið. Veistu hver var með ísleif á þessum tíma Ásthildur ?

 Fór ekki Ísleyfur IV lika á brennu Helgi og hluti af honum var notaður í myndina Sigla himinfley þar sem stefnið af honum var í Klaufinni. Ég man þetta ekki aðveg en minnir að hann hafi verið notaður í þá mynd.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 2.9.2011 kl. 16:57

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei ég veit ekki hver var skipstjórinn en ég get spurt Ella um það og skal gera það.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.9.2011 kl. 17:58

7 identicon

Sæll vertu Ísleifur lll var notaður í Sigla himinfley Ísleifur lV var stálbátur norsk smíðaður kv þs

þs (IP-tala skráð) 2.9.2011 kl. 21:14

8 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

HEILL OG SÆLL ÞÓRARINN, ÞAÐ LIGGUR VIÐ AÐ MAÐUR SKAMMIST SÍN AÐ MUNA EKKI EFTIR íSLEIFI IV. EN ÞETTA ER ALDURINN

KÆR KVEÐJA

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 2.9.2011 kl. 21:45

9 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Sigmar, það er rétt hjá Þ.S. að Ísleifur III var notaður í þáttunum "Sigla himinfley" en hvort báturinn var brenndur veit ég ekki, eða réttara sagt man ég ekki hvað Sigþór Ingvarsson frá Skógum sagði mér er hann hringdi í mig með þessar upplýsingar hér að ofan.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 3.9.2011 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband