27.8.2011 | 11:27
Lionsklubbur Vestmannaeyja var stofnaður 1974
Eitt af þeim félögum sem ég hef verið í og á góðar minningar um er Lionsklubbur Vestmannaeyja, þar eignaðist ég góða félaga og ég veit að klubburinn hefur gert margt gott í Eyjum í gegnum tíðina bæði fyrir félagana sjálfa og bæjarfbúa, hann starfar enþá af krafti að mér er sagt.
Tildrögin að stofnun klubbsins voru þau, að til Eyja flutti árð 1970 Birgir Indriðason sem þá var félagi í Lionsklubbnum Baldri í Reykjavík. Birgir var mikill Lions áhugamaður og vildi stofna klubb í Eyjum, en í fyrstu voru undirtektir ekki næjanlega góðar en voru þó alltaf til umræðu. Í byrjun árs 1974 flytur annar Lions maður til Eyja, Georg Hermannsson en hann kom frá Borgarnesi. Á þessum tíma voru menn orðnir meira opnir fyrir stofnun klubbsins og var hann stofnaður 6. apríl 1974 og að sjálfsögðu var Birgir Indriðason kosinn fyrsti formaður Lionsklubbs Vestmannaeyja en stofnfelagar voru 30. Í fyrstu stórn voru kosnir ásamt Birgir þeir Georg Hermannsson varaformaður, Gísli Þorsteinsson ritari, Arnfinnur Friðriksson gjaldkeri, Þórarinn Sigurðsson vararitari og Ólafur Runólfsson siðameistari sem sagt hörkulið. Myndin hér að ofan er af þremur fyrstu formönnum klubbsins.
Myndirnar er af þremur stjórnum Klubbsins.
Í lögum Lionsklubba er kveðið á að allt það fé sem safnast meðal almennings skuli óskert ganga til líknar og menningarmála, þetta var svo sannarlega gert meðan ég starfaði í klubbnum og er örugglega gert í dag ef ég þekki mína menn rétt. Ég ætla ekki að fara hér að telja upp það sem við hjá Lionsklubb Vestmannaeyja vorum að gera á þessum árum í líknar og menningarmálum,en mig langar að minnast hér á nokkrar fjáröflunarleiðir en sumar af þeim væri ógjörningur að framkvæma í dag.
Aðalfjáröflunarleiðir voru þegar ég var meðlimur í Lionsklubb Vestmannaeyja; perusala og sala jóladagatala, og fjórða hvert ár var rauða fjöðrin seld. Ýmislegt var gert annað eins og eitt skipti var Landakirkja máluð og farið á sjó á bátunum Dalarafni VE og Kap VE nokkuð sem ekki væri hægt í dag vegna kvótans.
Þessar myndir eru allar úr Lionsblöðum sem klubburinn hefur gefið út.
Til eru skemmtilegar myndir frá fiskveiðitúr Lionsmanna sem Þórarinn Sigurðsson á og hefur gefið mér leyfi til að setja á bloggið mitt, þær set ég inn fljótlega.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.