16.8.2011 | 22:36
Hús við Brekastiginn gamlar myndir
Myndin er af þórunni Sveinsdóttir á Byggðarenda og stendur hún á lóðinni við það hús. Húsin í bakgrunni eru til hægri Brekastgur 12 hús Sigmunds teiknara og Helgu konu hans en þau byggðu við þetta hús og stækkuðu það mikið ( man ekki nafnið á því þessa stundina) . Húsið til vinstri er Sólheimatunga.
Þessi mynd er aftur á moti tekin af lóð Sólheimatungu og sýnir niður og austur Brekasiginn og húsið lengst til hægri er Hallormsstaður og næsta hús er Árbær, man ekki nafnið á næstu húsum. Húsið til vinstri sem skagar aðeins út úr húsalínuni heitir Hæli.
Á þessum árum voru girðingar framan við húsin á Brekastignum eins og sjá má á þessum myndum, mikið askoti er maður orðinn gamall, ég man vel eftir þegar þetta var eins og myndirnar sýna.
Athugasemdir
Sæll Sigmar, hvaða vitleysa er það í þér að halda að þú sért gamall!!!!!!!!!
Aldur er orðin afstæður, á meðan menn og konur hafa heilsu!
Kær kveðja frá Eyjum.
Helgi Þór Gunnarsson, 18.8.2011 kl. 06:52
Heill og sæll Helgi Þór og takk fyrir innlitið alltaf gaman að fá athugasemd frá þér. jú víst er maður orðinn gamall, en það er rétt hjá þér Helgi minn að hugarfarið skiptir máli og auðvitað skiptir heilsan öllu máli.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 18.8.2011 kl. 21:22
Helgi Þór Gunnarsson, 19.8.2011 kl. 16:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.