14.8.2011 | 23:12
Hafnargerð í Eyjum hér áður fyr
Það gekk illa fyrstu árinn að byggja hafnargarðana í Eyjum og þá eins og nú á dögum voru til menn sem gagnrýndu þessa framkvæmdir, en að lokum tókst að byggja garða sem urðu nothæfir í áratugi. Það er gaman að rifja þetta upp.
Það var á árunum 1915 1917 þegar Hringskersgarðurinn í Vestmannaeyjum hrundi, að segja mátti jafn hratt og hann var hlaðinn , að þessi vísa var ort. Þó ekki hafi hún sérstakt skáldlegt gildi , sýnir hún þó mæta vel hugarfar almennings til hafnarmannvirkjanna, en vísan er svona:
Jóhannes staflar steinunum,
með sterkum handleggsbeinunum.
Næsta dag spyr náunginn:
Nielsen, hvar er garðurinn ?
Hans Nielsen var þá yfirverkstjóri hjá Monberg við hafnargerðina, mætur maður og dugnaðarþjarkur. Jóhannes Hannesson á Miðhúsum var verkstjóri næstur Nielsen. Hann var manna mestur vexti, duglegur og drengur góður, en vísan er sönn að því leiti, að oft hrundi það á einni nóttu í austan ofviðrum sem tekið hafði mánuði að byggja.
Úr bókinni Aldahvörf úr Eyjum
Athugasemdir
Sæll Sigmar, það er gott að þú minnist á þetta efni, ég held að fólk á Íslandi gæti lært svolítið af sögunni í hafnagerð, í tilliti við Land-Eyjahöfn, æðibunugangurinn er með ólíkindum, hraðinn ætlar allt að drepa, enda sagði ég alltaf og segi það enn, að það tekur tvö ár að slípa Land-Eyjahöfn til.
Kær kveðja frá Eyjum.
Helgi Þór Gunnarsson, 18.8.2011 kl. 06:57
Heill og sæll aftur Helgi minn, já mér datt í hug að setja þetta hér inn svona til að sýna framá að það eru alltaf einhverjir sem eru neikvæðir út í nýjungar og framfarir, og þeir sem eru framsýnir þurfa oft að þola gagnrýni á verk sín. Það er samt gott að til séu menn sem halda ótrauðir áfram þótt að þeim sé sótt. Það er líka ágætt að menn gagnrýni hlutina ef sú gagnrýni er málefnaleg, það er bara af hinu góða.
Ég er sammála þér þér Helgi að það á eftir að taka tíma að venjast þessari Landeyjahöfn og læra á hana og eflaust þarf að gera einhverjar lagfæringar og breytingar á henni á næstu árum. Og ég held ég að það séu fáir Eyjamenn sem óskuðu þess í dag að þessi höfn hefði aldrei verið byggð.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 18.8.2011 kl. 21:52
Helgi Þór Gunnarsson, 19.8.2011 kl. 16:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.