7.8.2011 | 00:48
Síðasta ferðin með fellihýsið
Síðasta ferðin okkar með fellihýsið þetta sumarið var farin upp í Borgarfjörð, þar sem við fengum að tjalda við Sumarbústað á góðum stað í góðu veðri. Við höfðum með okkur Kolbúnu Soffíu Þórsdóttir eitt af barnabörnum okkar. Við áttum þarna góða daga með Friðrik mág og Guðlaugu sem á bústaðinn. Kolbrún Soffía skemmti sér vel eins og sjá má þarna á myndunumm, enda allt til alls fyrir litlar stelpur sem kunna að leika sér.
Í dag keyrðum við á Þingvöll og inn í Fljótshlíð til Sigga mág og Sigurbjörgu og áttum þar góðan dag með kaffispjalli og með því. Því miður gleymdum við myndavélini þannig að ekki er hægt að hafa myndir frá þessu ferðalagi í dag.
Á mánudag tekur vinnan við, þar sem sumarfríið er á enda.
Búið er að ganga frá fellihýsinu í geymslu þar sem það verður til næsta sumars.
Athugasemdir
Komdu sæll Sigmar, alltaf gaman að lesa bloggið þitt alltaf bjart yfir því og maður finnur fyrir hversu þú ert nátengdur náttúrunni. Ég held að þú ættir ekki alveg strax að ganga frá fellihýsinu, oft er ágúst mánuður góður og ég hef það á tilfinningunni að í ár verði hann MJÖG góður.
Bestu kveðjur
Jóhann Elíasson, 7.8.2011 kl. 09:56
Heill og sæll Jóhann og takk fyrir innlitið. Ekki veit ég hvort ég er nú svo mikið tengdur náttúrunni, þó ég hafi nú gaman að fara með fellihýsið í smá frí. Ég vona að þú verðir sannspár með að ágústmánuður verði góður, það yrði góður endir á þessu sumri.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 7.8.2011 kl. 21:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.