29.7.2011 | 00:47
Vísir hf er fyrirmyndar útgerð.
Jóhanna Gísladóttir ÍS frá Þingeyri, er aflahæstur línubáta það sem af er júlí með 249,4 tonn.
Mest hefur Jóhanna landað 98,9 tonnum í einni löndun. Í dag eru fáir línubátar á sjó, aðeins eru línubátar frá útgerðarfyrirtækinu Vísir í Grindavík sem enn eru að veiðum og Þorlákur ÍS frá Bolungarvík. Aðrir bátar eru komnir í frí eða kvótinn er búinn, samkvæmt frétt á vef Bæjarins besta.
Það kemur ekki á óvart að Jóhanna Gísladóttir ÍS-7 sé aflahæst línubáta þar sem hana gerir út úgerðarfélagið Vísir hf í Grindavík. Vísir leggur metnað sinn í að búa skip sín vel út hvað varðar öryggisbúnað, aðbúnað skipverja og veiðarfæri. Þarna um borð er örugglega úrvalsmannskapur sem kann sitt fag. Þetta skilar sér í betri árangri í veiðum og vinslu.
![]() |
Jóhanna fiskar vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.