27.7.2011 | 11:56
Mylluhóll auglýsir Glæsilega ölstofu 1984
Það getur verið gaman að skoða gamlar auglýsingar og rifja upp hvaða fyrirtæki voru að auglýsa hér á árum áður. Þessi auglýsing er úr Þjóðhátíðarblaði Þórs frá árinu 1984 og er frá Mylluhól sem var í Höllinni sem nú er í eigu Hvítasunnusafnaðarins í Eyjum ( Betel). Það eiga örugglega margir góðar minningar frá Mylluhól.
Athugasemdir
Frábærar minningar en vissi ekki að ég hefði verið auglýstur sem fastagestur :)
Alli Jónatans (IP-tala skráð) 28.7.2011 kl. 21:09
Heill og sæll Alli og takk fyrir innlitið, já þú ert þarna í horninu aulýstur sem fastagestur. Ég hef gaman af því að skoða þessar gömlu auglysingar. Nú er Þjóðhátíðin að byrja og hukkaraballið í kvöld. Er ekki hugurinn heima í Eyjum á þessum tíma Alli
??.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 28.7.2011 kl. 23:57
Sæll Simmi og gleðilega Þjóðhátíð. jú ég verð nú að viðurkenna að þetta er með erviðustu helgum ársins,
og mikið hgsað heim, en maður getur ekki verið allsstaðar.
kveðja frá Californíu
Alli Jónatans (IP-tala skráð) 29.7.2011 kl. 22:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.