5.6.2011 | 16:00
Fyrsta sumarferðin með fellihýsið
Um helgina fórum við hjónin fyrstu sumarferðina með fellihýsið okkar, þetta var svona prufuferð til að vita hvort þetta virkaði allt eðlilega. Og auðvitað var þetta allt í lagi, miðstöð, ískápur, vatn og vatnsdæla enda Coleman Carmel græja .
Við fórum upp í Borgarfjörð og tjölduðum þar á góðum stað, en veðrið var ekkert sérstakt frekar kallt, og ringdi í nótt og í morgun. Það var fátt fólki á ferðinni.
Vonandi verður hlýrra og betra veður næstu helgi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.