Gömul minningarbrot

Minningarbrot

Bjarni Jónasson stýrimaður og flugmaðurMér er minnistætt  þegar Bjarni Jónasson þá stýrimaður ( Seinna flugmaður og kennari m.m.) var að byggja húsið sitt við Brekkugötu, þar sem þau Bjarni og jórunn  kona hans  búa en. Þá var á sama tíma  Óskar Matt frændi minn og Þóra Sigurjónsdóttir að byggja sitt hús við Illugagötu 2 og við frændurnir, Stjáni, Sigurjón, og Matti vorum þar að nagldraga og skafa timbur. Þegar við höfðum klárað þá vinnu hjá Óskari var Bjarni að byrja að slá utan af sínu húsi sem var næsta hús við nýbyggingu Óskars. Hann sá að þarna voru peyjar á ferð sem gott væri að fá í vinnu enda þekkti Bjarni okkur alla vel. Á þessum tíma tíðkaðist ekki að borga peninga fyrir að slá mótatimbri utanaf húsum, nagldraga og skafa síðan timbrið, enda flestir staurblankir sem stóðu í nýbyggingum á þessum árum, eins og reyndar alltaf. En Bjarni dó ekki ráðalaus frekar en fyrri daginn. Þannig var að hann átti KK mótorhjól og Valgeir bróðir hans átti samskonar hjól nema það var gult að lit, annars voru þessi KK hjól yfirleitt fölgræn. Bjarni vissi að við höfðum mikinn áhuga á þessum hjólum, því við vorum oft að skoða þau fyrir utan nýbygginguna hjá honum þar sem þeir bræður voru að vinna. Hann kom því einn daginn og gerði okkur tilboð sem enginn af okkur gat hafnað.

Tilboðið var á þá leið að við ynnum við húsið hans að nagldraga og skafa timbur í einn klukkutíma í senn, og í laun fengum við að fara á mótorhjólunum í 15 mín  Í staðinn, og þannig koll af kolli allan daginn. Reglur voru settar þessháttar að ekki mátti fara niður í bæ heldur varð að hjóla inn í dal og eða út á Hamar, enda vorum við allir próflausir. Það þarf  ekki að orðlengja það að við tókum tilboðinu með þökkum enda eru þeir bræður einnig skemmtilegir að vinna með. Við kláruðum að naglhreinsa og skafa timbrið á mettíma. Ég fullyrði það, að allir vorum við frændurnir ánægðir með okkar hlut, og ekki síður voru þeir Bjarni og Valgeir Jónassynir ánægðir með sitt hlutskipti, en þeir hefðu verið nokkrum dögum Bjarni ,Jórunn og valgerðurlengur að nagldraga og skafa ef þeir hefðu ekki fengið hjálp okkar peyjana.

það er alltaf gaman að rifja upp þessar gömlu minningar sem ég reyndar skrifaði niður fyrir nokkuð mörgum árum.

Sigmar Þór

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta hefur sko verið frábær "díll" fyrir alla aðila.

Jóhann Elíasson, 29.1.2011 kl. 17:41

2 identicon

Skemmtileg saga

Pétur Steingríms. (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 17:43

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heilir og sælir Jóhann og Pétur og takk fyrir innlitið. Já Jóhann þetta var góður Díll á þessum tíma  en

væri kannski ekki metinn eins í dag af úngu fólki.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 29.1.2011 kl. 19:53

4 identicon

Sigurjón sagði mér að pabbi hafi verið að stríða Bjarna með því að kalla húsið hans Bjarna Hlandforastaði þvi það var hlandfor þar sem húsið er byggt, þá svaraði Bjarni ef mitt hús er Hlandforastaðir þá er þitt hús Hlandforastaðahjálega. kv ÓÞÓ

Óskar Þór Óskarsson (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 12:16

5 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Óskar Þór, takk fyrir innlitið og þessa athugasemd, ég man ekki eftir þessu. En  Bjarni lét engan eiga inni hjá sér og ég get vel trúað að hann hafi svarað Óskari frænda svona.

Ég á fleiri skemmtilegar sögur frá veru minni með Bjarna á Gullþórir VE, kannski set ég þær hér inn við tækifæri.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 31.1.2011 kl. 16:53

6 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Sigmar, þessu get ég vel trúað um hann Bjarna vin minn, ég fæ oft sögur frá honum er ég fer til Stebba skó og fæ te.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 31.1.2011 kl. 18:06

7 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Helgi og takk fyrir innlitið. Já Bjarni er bæði skemmtilegur og góður félagi, það var gott að vera með honum á sjó, en hann var stýrimaður á Gullþórir VE hjá Gísla Sigmars þegar ég var að byrja til sjós drullusjóveikur og oft illa haldin. Þá var gott að hafa góða yfirmenn eins og Bjarna og Gísla frænda, þetta eru hlutir sem maður man vel eftir.

Kær kveðja úr Kópavogi

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 31.1.2011 kl. 19:00

8 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Helgi Þór Gunnarsson, 31.1.2011 kl. 20:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband