28.12.2010 | 20:19
Gleðileg jól 2010 á Vopnafirði
Um jólin vorum við hjónin á Vopnafirði í góðu yfirlæti hjá Gísla, Hrund, Hrefnu Brynju, Bryndísi og Matthíasi. Þetta voru góðir dagar þar sem borðaður var frábær matur kannski helst til mikið en það er seinna tíma vandamál sem tekið verður á eftir áramót . Flesta dagana var gott veður en versnaði á annan í jólum svo við vorum einum degi lengur. Við fórum í Vopnafjarðarkirkju og hlýddum á jólamessu og á jóladag fórum við í Hofskirkju þannig að ekki skorti guðsorðið á þessum jólum. Þá lét ég bloggið eiga sig um þessi jól það er skýringin á því að ég hef ekkert skrifað né svarðað á blogginu mínu. Þetta voru frábær jól sem við áttum með fólkinu okkar á Vopnafirði.
Tvær efstu myndirnar eru frá Vopnafirði en hús og fyrirtæki voru fallega skreytt í bænum.
Á þessum myndum eru: Einar, Gísli og Hrund og á sleðanum eru Gíli og mamma hans Kolbrún Ósk, sá gamli er orðin of gamall á svona leiktæki .
Að sjálfsögðu komu jólasveinar í heimsókn með jólagjöf handa Matta, þeir hétu Kertasníkir og Stúfur, á myndinni er Matti með Hrund Mömmu sinni og jólasveinunum.
Á aðfangadag elduðu hamborgarahrygg þau Kolla og Gísli á meðan við öll hin fórum í kirkju, þarna tekur Hrund það rólega eftir kirkjusóknina, enda törn hjá henni í eldamenskunni næstu tvo daga.
Hér eru þær Bryndís og Hrefna Brynja komnar í jólafötin og jólaskap
Hrefna Brynja, Hrund og Kolla og húsbóndinn á heimilinu Gísli í góðu skapi.
Matthías Gíslason inni og seinni myndin sýnir hann í gallanum sem hann er í þegar hann fer á snjósleðann með pabba sínum
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.