19.12.2010 | 16:51
Jólaskapið að taka völdin
Sigurður Óskarsson trésmiður kafari báta og gluggasmiður með meiru gerði þennan texsta ásamt gullfallegu lagi sem hann kallar Jólastjarnan, lagið kom út á diski fyrir Jólin 2007 diskurinn heitir Jól með Óskari og Laugu. Þessi texti á að mínu viti vel við þessa dagana.
Á myndinni er Sigurður Óskarsson kannski nokkrum árum yngri en hann er í dag, en hann hefur lítið breyst kannski komin nokkur grá hár ef ég man rétt.
Jólastjarnan
Nú jólaljósin ljóma í kvöld,
svo lítil björt og tær.
Þau minna á jólastjörnuna,
sem sífelt ljómar skær.
Húnboðaði komu frelsarans,
Sem lýsir skært vorn heim.
Við hlíta eigum orðum hans
Og helga oss megum þeim.
Því undirstaða hamingju
Er sífelda kenning hans.
Við skulum gleðjast saman í kvöld,
Yfir komu frelsarans.
Um trúna sem er oss æðsta hnoss
við skulum standa vörð.
Og efla frið og hamingju
á meðal manna á jörð.
Eftir Sigurð Óskarsson
Athugasemdir
Hann hefur klárlega verið innblásinn við þessa texrtagerð. Magnaður.
Óskar Sigurðsson, 22.12.2010 kl. 11:57
Heill og sæll Óskar, já hann hefur verið innblásinn þegar hann gerði þetta fallega jólaljóð. Það er ekki nógu gott að Siggi og reyndar þú skulið ekki vinna meira ljóða og lagagerð. ÞIð hafið svo sannarlega hæfileikana.
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 22.12.2010 kl. 12:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.