29.11.2010 | 23:24
Þekkir einhver þessa krakka frá Eyjum
Þarna held ég að Bjarnólfur Lárusson sé ásamt öðrum krökkum sem ég þekki því miður ekki, gaman væri að fá athugasemdir ef einhver þekkir hina krakkana á myndinni.
Myndina skannaði ég úr Fréttum vikublaði 8. árgangi 16. júli 1981.
Í þessu sama blaði er sagt frá því að þjóðhátíðarnefnd Týs sé búin að ákveða verð á aðgöngmiða á Þjóðhátíðina og eigi hann að kosta 400 kr.. Börn innan fermingar og gamalmenni þurfa ekki að borga.
Krakkarnir eru í stýrishúsglugga gamla Herjólfs
Athugasemd frá Óskari skáfrænda:
Sæll Simmi. Lauga segir að þetta séu Bjarnólfur, Kiddi Gogga í klöpp, Tryggvi fóstursonur Olla málara, sá hálfi á myndinni sennilega Örvar flutti frá Eyjum ungur.
Athugasemdir
Sæll Simmi. Lauga segir að þetta séu Bjarnólfur, Kiddi Gogga í klöpp, Tryggvi fóstursonur Olla málara, sá hálfi á myndinni sennilega Örvar flutti frá Eyjum ungur.
Óskar Sigurðsson, 29.11.2010 kl. 23:38
Heill og sæll Óskar og takk fyrir þetta , ég set þetta hér upp.
Kær kveðja úr Kópavogi
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 29.11.2010 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.