24.11.2010 | 21:35
Skemmtilegt að koma á vigtina til Torfa
Síðustu tvo daga hef ég verið í Vestmannaeyjum að vinna, þar sem ég var að skoða skip, öryggisbúnað við höfninni og Gúmmíbátaþjónustu Vestmannaeyja.
Veður í Eyjum hefur verið fábært þessa daga og sérstaklega var það fallegt í dag. Þó Vestmannaeyjar séu að manni finnst fallegastar á sumrin þá geta komið svona dagar með þessa ótrúlega fallegu liti í fjöll og eyjarnar í kring, þetta gerist þegar sólin er svona lágt á lofti. Á heimleiðinni í flugvélinni var allur sjóndeildarhringurinn rauður og ótrulega fallegt að horfa yfir Eyjarnar.
Í dag gaf ég mér tíma til að heimsækja Torfa vin minn á vigtinni og þá skemmtilegu menn sem þar venja komur sínar. Þegar ég kom inn var mér tilkynnt að ég vari áheyrnarfulltrúi sennilega með málfrelsi, því mér var ekki meinað að taka þátt í umræðum. Eins og myndin sýnir þá eru þetta sérstaklega skemmtilegur hópur manna sem segir skemmtilegar sögur af mönnum og málefnum. Þið ráðið hvort þið trúið því eða ekki en það var ekki tekin til umræðu Landeyjarhöfn. Gott kaffi var þarna á boðstólum.
Þeir sem eru á myndinni eru t.f.v; Þór Vilhjálmsson, Snorri Jónssin, Óskar Þórarinsson, Sigmar Þ. Ólafur Ragnarsson bloggvinur minn. Á myndina vantar Torfa Haraldsson, Bervin Oddson og Eirik Þorsteinsson en allir þessir menn komu í kaffi og spjall þennan tíma sem ég staldraði við í húsinu við Friðarhöfn.
Torfi og félagar ég þakka ykkur kærlega fyrir gott kaffi og skemmtilega samverustund í dag, hlakka til að koma aftur til Eyja svo ég geti komist aftur á fund í litla húsið í Friðarhöfn.
Kær kveðja úr Kópavogi SÞS
Athugasemdir
Takk fyrir síðast, þó stutt hafi verið.
Kær kveðja frá Eyjum.
Helgi Þór Gunnarsson, 24.11.2010 kl. 21:58
Heill og sæll Helgi og þakka þér sömu leiðis fyrir síðast. Já það hefði verið skemmtilegra að taka legra spjall, en við gerum það bara næst þegar við hittumst.
Kær Kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 24.11.2010 kl. 22:15
Flottir. Verst að hafa ekki hitt þig .Það verður bara seinna. Kveðja á Kollu þína.
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 25.11.2010 kl. 07:33
Sæll vinur. Og tak for sidst på dansk. En myndin er örugglega tekin eftir að Þór sagði söguna af bílstjóranum með vélavandamálið. Annars var svo margt sem kitlaði hláturtaugarnar á þessum fundi. Sértu ávallt kært kvaddur
Ólafur Ragnarsson, 26.11.2010 kl. 02:06
Sælir. Þú hefur náð þér á strik þarna það er auðséð á svipnum á þér. Komið stígvélafullur af einhverjum bölvuðum lygasögum og þeir trúað eins og nýju neti hrekklausir mennirnir. Það er orðið tímabært að ég fari til Vestmannaeyja og snúi eitthvað afan af þessu.
Með góðri kveðju Heiðar Kristinsson
Heiðar Kristinsson (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 14:56
Heil og sæl öllsömul og takk fyrir innlitið. Já það er gaman að koma til Eyja og hitta gamla vini og kunningja, að koma við á vigtinni hjá Torfa er upplifelsi út af fyrir sig, einnig er gaman að koma á sóknarnefndarfund hjá Sigga Mág þar sem málin eru rædd í þaula.
Heiðar minn ég væri til í að koma með þér til Eyja og þar gætum við heimsótt margan skemmtilegan manninn. Þar eru ekki sagðar lygasögur einfaldlega vegna þess að við Eyjamenn kunnum ekki að ljúga nema í neyð .
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 26.11.2010 kl. 19:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.