Sennilega 11 ára Afmæli á Illugagötu 2

myndir007

Dásamlegir dagar þessir gömlu góðu

Þetta eru myndarlegir peyjar sem þarna sitja afmælisveislu með rjómatertum ( 11 kerti á tertu )  og öðru góðgæti.

Ingibergur Óskarsson telur að afmælisbarnið sitji fyrir miðju og sé þá Leó og og myndin sé frá 1964

T.f,v: Halldór Sveinsson, Helgi Gunnarsson, Sævar Sveinsson, Leó Óskarsson, Ágúst Halldórsson og Óskar Þór Óskarsson

myndir006

Hér er önnur mynd úr sama afmæli, en nú er það kvikmyndasýning  t.f.v: Óskar Þór Óskarsson stjórnar kvikmyndavélinni, sennilega að sýna apamyndina sagði hann mér í tölvupósti en hún var  vinsælust,  þá er það Ingibergur í kjöltu Vantar nafn ( kannski Guðríður?) Þá Þórunn Óskarsdóttir, Hrefna Baldvinsdóttir, Leó Óskarsson, Hjörleyfur Sveinsson, Halldór Sveinsson. Þá er það fremsta röð t.f.v: Ágúst Halldórsson, Sævar Sveinsson, Helgi Gunnarsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Sigmar, ég held ég verði að sýna honum Ágústi á Essó þessa mynd.

Það er virkilega gaman að sjá þessa mynd af þessum þjóðþekktum mönum hér í Eyjum.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 2.11.2010 kl. 21:10

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Helgi, já það er gaman að skoða þessar gölu myndir og sumir þessir Peyjar eru vel þekktir alla vega í Eyjum. Verst að vita ekki hver átti þarna afmæli, en ef einhver af þessum peyjum kemur hér á bloggið mitt þá man hann kannski hver átti afmæli.

Þetta er ein af mörgum myndum sem Ingibergur Frændi minn lánaði mér. 

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 2.11.2010 kl. 21:16

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sigmar, ég skal spyrja Ágúst í fyrramálið, ég fer á hverjum morgni og fæ mér kaffi og smá spjall við kallana.

Helgi Þór Gunnarsson, 2.11.2010 kl. 21:21

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Ég fer á hverjum morgni á Essó, ætlaði ég að hafa hér að ofan.

Helgi Þór Gunnarsson, 2.11.2010 kl. 21:22

5 identicon

Bara dásamlegt.Hugsa samt með hryllingi til ofurskreyttu rjómatertnanna sem mæðurnar voru sveittar við að skreyta .Úff

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 2.11.2010 kl. 22:04

6 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Helgi þú spyrð Ágúst á morgun.

Heil og sæl Ragna, já það er vel í lagt þarna, og taktu eftir að fínasta stellið er notað handa peyjunum

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 2.11.2010 kl. 22:58

7 identicon

Geri ráð fyrir að afmælisbarnið sitji fyrir miðju þá Leó og sé þá tekið 1964

ingibergur óskarsson (IP-tala skráð) 2.11.2010 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband