20.9.2010 | 18:19
Heimaklettur
Margir hafa gert ljóð um Heimaklett, hér er ljóð um þetta fallega fjall eftirr Kolbrúnu Hörpu Kolbeinsdóttir
Heimaklettur
Heimaklettur úr hafi rís,
dýrð sé þér, lof og prís.
Gyllir feld þinn sólarglóð,
skrýðist fegurst blómaslóð.
Stendur vörð þinn, nótt og dag,
syngja fuglar fagurt lag,
þeir eiga lífið, að launa þér,
sem að berð þá í faðmi þér.
Þú vörður Eyjanna tiginn ert,
þó að aldri , þú gamall sért
mun ég ætíð minnast þín
þegar lokast augu mín.
Höfundur
Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir
Athugasemdir
Harpa er snilldar ljóðskáld.Hef lesið nokkur ljóð eftir hana og þau eru yndisleg,
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 20.9.2010 kl. 19:40
Heil og sæl Ragna, já ég er sammála þér hún er góð
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 20.9.2010 kl. 21:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.