Öryggisbúnaður Hafna hér og erlendis er misjafn

BryggjukannturBryggjustigi

Á þessum myndum sést hvað bryggjukantar eru lágir aðeins um 10 sm og með flága sem auðveldar bílum og hjólum að fara yfir kanntinn. Á 'islenskum bryggjum er lagmarkshæð 20 sm.  þessi bryggja er er alveg ný. Bryggjustigar á þessari bryggju eru góðir en ekki búnir ljósum eins og á íslenskum bryggjum. Engann bjarghring eða annan björgunarbúnað var að sjá þarna á þessari bryggju, en þarna er fólk mikið að veiða á stöng.

 Sem  áhugamaður um öryggismál sjómanna og þar með hafna kom mér á óvart þegar ég var á ferð  í Skagen í Danmörku, hvað öryggisbúnaður í höfnum þar er öðru vísi en á Íslandi, Þar er óhemju mikið af fólki á ferð  um bryggjurnar en litið um öryggisbúnað ef skys ber að höndum. Í Íslenskum höfnum eiga vera samkvæmt reglum um öryggisbúnað hafa eftirfarandi Búnaður á ákveðnu millibili.

Krókstjaki, Bjarghringur, Björgunarnet eða Björgvinsbelti, bjölluskápur eða sími, stigar með ljósi. Þá á lýsing að vera góð og sérstaklega er tekið fram að aðgengi að þessum björgunarbúnaði á að vera góð.

Á bryggjurúnt sem við fórum um höfnina í Skagen  fannst mér þetta vera allt miklu ver búið en í íslenskum höfnum, þarna sannfærðist ég um það enn einu sinni að við Íslendingar erum að mörgu leiti miklu framar í slysavörnum við sjó og einnig um borð í íslensku skipum. Enda hefur slysum fækkað verulega á síðustu 30 til 40 árum.

BjarghringurDanskur fiskibátur

Þessi bjarghringur var eini björgunarbúnaðurinn á þessari bryggju sem var með langan viðlegukannt. Dönsku bátarnir eru upp til hópa vel við haldið eins og þessi á myndinni.

Seglskútur

IMG_5589

Reykajvíkurhöfn er til fyrirmyndar hvað öryggisbúnað snertir, þessar myndir hér fyrir neðan  tók ég af hluta af þeim öryggisbúnaði sem þar er. Annars er öryggisbúnaður hafna sem ég hef séð  kringum landið í nokkuð góðum lagi þó sumstaðar megi gera betur. Miðað við hafnir sem ég hef séð erlendis eru íslenskar hafnir upp til hópa miklu betur búnar öryggisbúnaði.

IMG_2296IMG_2300

IMG_2299


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Sigmar Þór, úr því þú nefnir það, þá man ég eftir því að bjölluskáparnir hér í Eyjum eru úr sér gegnir, hefur þú einhverja hugmynd um það hvort því sé fylgt eftir að bjölluskápar séu í lagi? Við munum þá tíð er símaklefarnir voru á flestum bryggjum, sem var auðvita gott að vita af ef slys bar að höndum, svo man ég eftir nokkrum símahrekkjum úr þeim, en það er nú önnur saga.

Helgi Þór Gunnarsson, 19.8.2010 kl. 10:48

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Helgi Þór, já það virðist vera mjög erfitt að halda þessum bjölluskápum í lagi, en í notkun eru nokkrar tegundir af þeim misjafnlega góðar. Því miður eru margar hafnir að gefast upp á að halda bjölluskápum við vegna tíðra bilana. En það eru þó nokkrar hafnir sem hafa getað haldið þeim í lagi. Það er slæmt að vera með þessa bjölluskápa ef þeir eru ekki í lagi, því það skapar falskt öryggi. Margir hafnarstarfsmenn vilja leggja þessa bjölluskápa niður á þeim forsendum að þetta sé falskt öryggi og flestir gangi nú með GSM síma. Mín skoðun er sú að þetta sé mikilvæt öryggistæki en það verði þá að vera hægt að treysta Því.

Kær kveðja úr Kópavogi 

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 19.8.2010 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband