31.7.2010 | 22:31
Skemmtileg ferð til Skagen i Danmörku
Síðasta hálfa mánuðinn höfum við hjónin verið í Danmörku í heimsókn hjá Hörpu dóttir okkar, Þór og Kolbrúnu Soffíu, Við komum heim í gærkvöldi, þessi heimferð og 8 klukkutíma seinkun á flugi til Íslands frá Billund er kannski tilefni til sérstakrar bloggfærslu, en maður er ótrúlega fljótur að gleyma svona vandræðum ef maður setur sig bara í jákvæðisgírinn og hugsar um það skemmtilega sem gerðist í ferðinni til Danmörku og góðan endir á fluginu til Íslands.
þann 18 og 19 juli s.l. forum við til Skagen að hitta Sigurjón og Sigurlaugu ásamt Þóru Hrönn og börnum hennar Óliver og Sunnu, en þau búa þar timabundið meðan verið er að smíða nýja Þórunni Sveinsdóttir. Þarna var tekið vel a móti okkur eins og þeirra hjóna er von og visa. Sigurjón keyrði með okkur Þór um Skagen og sýndi okkur allt hafnarsvæðið eins og það leggur sig og nýja skipið sem er hið glæsilegasta. Verið er að setja niður spil og vélar, en í Danmörku eru sumarfrí í algleymingi þannig að verkið er ekki alveg komið á fulla ferð þegar við vorum þarna á ferðinni. Ég set sérstakt blogg um þessa nýsmíði og myndir sem teknar voru í ferðinni.
Heima hjá þeim hjónum t.f.v Sigurlaug, Sigurjón og Þóra Hrönn og á næstu mynd er Þóra Hrönn , Harpa , Þór og Kolla. Á mynd hér fyrir neðan er Óliver, Kolbrún Soffía og Sunna og þau hjón Sigurjón og Sigurlaug.
Að sjálfsögðu var farið út að borða og borðaður góður matur á skemmtilegum matsölustað, og myndin hér að ofan er af þeim Kolbrúnu og Sigurlaugu.
Hér eru við Sigurjón að grilla fyrir heimilisfólkið, en eins og kannski sést á myndinni er grillið nokkuð flókið apparat þanniga að Sigurjón þurfti að hringja í vin ( Daða) til að fá upplýsingar um hvernig ætti að nota það, þetta gekk allt upp fyrir rest þannig að grillið virkaði og indælis pulsulykt angaði um nágrennið. Það sem klikkaði var að kvennpeningurinn hafði bara ekki löngun til að borða pulsurnar, dömurnar voru nefnilega nýkomnar úr bænum þar sem þær fengu sér nýbakaðar vöfflur með ís eða rjóma.
Við vorum sammálaum um það að Þessi dagar í Skagen með Sigurjóni; Sigurlaugu, Þóru Hrönn Óliver og Sunnu voru með bestu dögum ferðarinnar til Danmörku, hafi þau þökk fyrir skemmtilega og eftirminnilega daga á Skagen.
Sunna, Kolbrún Soffía og Óliver.
Meðfylgjandi myndir segja meira en mörg orð um þessa ferð okkar til Skagen.
Athugasemdir
Sæll Sigmar og velkomin heim. ég sé að þú hefur gert góða ferð til Danmerkur
Kveðja Heiðar
Heiðar Kristinsson (IP-tala skráð) 1.8.2010 kl. 08:39
Heill og sæll Heiðar og takk fyrir kveðjuna, já þetta var fín ferð til Danmörku. Það er alltaf gaman að vera þar þó manni gangi nú frekar illa að tala blessaða dönskuna. En það var gaman að skoða nýju þórunni Sveinsdóttir , þetta verður örugglega glæsilegt skip þegar það er fullklárað.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 1.8.2010 kl. 14:24
frændi ég var farin að sakna þess að sjá ekkert skrifað á síðuna þína skemmtilegr myndir velkomin heim
Helga Pétursd (IP-tala skráð) 2.8.2010 kl. 13:27
Heil og sæl Helga frænka og takk fyrir innlitið og kveðjuna. Það er ágætt að hvíla sig aðeins á blogginu þegar maður er í útlöndum, þó maður hafi haft aðgang að tölvu, þá nenti ég ekki að blogga heldur notaði tímann í annað.
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 2.8.2010 kl. 13:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.