12.7.2010 | 23:38
Góð frétt fyrir alla
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LIF er komin til starfa að nýju eftir að hafa verið um hríð í reglubundinni skoðun. Landhelgisgæslan hefur nú tvær Super Puma-þyrlur til umráða. Auk TF-LIF er TF-GNA notuð við leit og björgun, löggæslu og eftirlitsstörf Gæslunnar.
Þetta er ein af góðu fréttunum sem aldrei er of mikið af. Að fá TF-LÍF aftur til starfa er frábært og mun auka öryggi sjómanna og allra landsmanna. TF-LÍF flýgur ekki sjálf við eigum sem betur fer frábæra vel þjálfaða flugmenn og flugliða á þessar flugvélar, það skulum við líka muna eftir og meta.
Þyrlurnar gegna ýmsum störfum, hér er þyrla LHG að störfum við þrídranga, en vitinn í þrídröngum er þjónustaður með því að senda menn og búnað í hann með þyrlum.
TF-LIF á loft að nýju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já þetta eru góðar fréttir.
versta er bara að í raun vantar 2 í viðbót til þess að þetta væri einsog þetta á með réttu að vera.
Árni Sigurður Pétursson, 13.7.2010 kl. 00:04
Heill og sæll Árni, já ég tek undir það að það vantar tvær þyrlur í viðbót, en það virðist ekki vera mikill áhugi hjá ráðamönnum að auka við flugflotan.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 13.7.2010 kl. 00:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.