Vestmannaeyingar Gaman saman á tjaldstæðinu í Reykholti

sumarferð Krabbó 055sumarferð Krabbó 057

 Ekki vorum við búin að vera lengi á tjaldstæðinu að Reykholti þegar í ljós kom að hópur Eyjamanna og kvenna var á tjaldstæðinu, var það óvænt ánæja að hitta nokkra þeirra og taka spjall. Það var líka vinalegt að heyra Eyjalögin sungin þegar liða tók á kvöldin. Þessi hópur er nefndur Gaman Saman

Að sjálfsögðu var smellt af nokkrum myndum af Eyjafólkinu sem ég set hér á síðuna til minningar um skemmtilega helgi. Á fyrstu mynd má sjá Einar Steingrímsson flugumferðarstjóra, á næstu mynd er Sigurður Ingi, Jóna og Kolla.

sumarferð Krabbó 058sumarferð Krabbó 059

Á þessari mynd er Himmi, Didda ( Jóna Sigríður) Kári Birgir og Kolla. Þá er það Drífa, Björn og Siggi Kokkur.

sumarferð Krabbó 060sumarferð Krabbó 063

Hér er vinur minn Ágúst Guðmundsson. Marí, Runólfur og Kolla

sumarferð Krabbó 087sumarferð Krabbó 089

Daníel og frú og Viðar og frú.  Þá er hér mynd af Sigga skipstjóra, Evu, Inda Maríu, Erling.

sumarferð Krabbó 090sumarferð Krabbó 088

Og þá er ég í vandræðum vantar nöfn á þessi þrjú. Eva, Inda María, Erlingur og Maddí.

Ég vona að þetta séu rétt nöfn hjá mér, ef ekki þætti mér vænt um að fá athugasemdir hér fyrir neðan.

Kær kveðja


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábærar myndir Simmi, vantaði Helga og Mörtu?

Alli Jónatans (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 21:56

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Alli og takk fyrir innlitið, já það vantaði svo sannarlega Helga Lása og Mörtu. Vonandi hittir maður þau einhvern tímann í sumar.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 16.6.2010 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband