15.6.2010 | 22:56
Fyrsta ferð sumarsins með fellihýsið
Þann 11. og 12. júní fórum við í fyrstu útilegu sumarsins með fellihýsið. Farið var að Reykholti í Biskupstungum þar sem er nokkuð góð aðstaða og ágætt veður allavega fyrri daginn. Þarna vorum við með hluta af starfsfóli KÍ allt skemmtilegt fólk og gaman að vera þarna uppfrá. Á mynd 2 má sjá stelpurnar í hópnum tfv: Kristtín, Sigríður, Maja, Guðrún, Kolla og Jóna Birna.
Fellihýsið okkar og í heimsókn voru Siríður og Guðmundur sem tók hluta af þessum myndum.
Í góðum gír tfv; Simmi, Kolla og oddur. og í dyragættini eru Kolbrún og Harpa
Grillið komið í gang og lærisneiðar á. Tfv. Kristján, Simmi, Kolla, Kristín. og Kolla og Jóna Birna.
Hér er Ósk og Sveinn mótstjóri í kubbakastinu og Svenni, Ósk, Maggi, Harpa og hundurinn Nala.
Vinsælt var að keppa í kubbaleiknum og voru sumir betri en aðrir Og hér fyrir neðan eru myndir af Tomma, Maju og saftflösku. Guðrúnu og Oddi að grilla á kolagrilli .
Góð helgi með skemmtilegu fólki.
Athugasemdir
Rosa gaman að sjá allar þessar myndir :)
Harpa (IP-tala skráð) 18.6.2010 kl. 14:45
Heil og sæl Harpa takk fyrir innlitið, það stytist í danmörkuförina![](/js/tiny_mce/plugins/emotions/images/Grin.png)
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 21.6.2010 kl. 22:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.