10.4.2010 | 15:33
Gúmmíbjörgunarbátar á farþegaskipi
Það getur verið nokkuð flókið að ganga frá gúmmíbjörgunarbátum á farþegaskipum, myndirnar tók ég þegar verið var að taka út björgunarbúnaðinn um borð í Farþegaskipinu Baldri. Það skiptir öllu máli að Gúmmíbjörgunarbátar séu rétt tendir og allur þessi björgunarbúnaður sé rétt frá gengin þannig að allt virki eins og til er ætlast á neyðarstundu. Gummíbjörgunarbátarnir er bæði tengdir fjarlosun og sjálfvirknilosun af gerðinni Hammar.
Athugasemdir
Sæll Sigmar, það var gott að þú komst með þennan pistil hér og nú, því ég er búinn að ganga með í kollinum undanfarið svipað mál um borð í Herjólfi, eins og þú veist þá er ég búinn að vera að leysa af á Herjólfi vetur og fór Sigmar Gísla frændi þinn og yfirstýrimaður með mig í nýliðafræðslu, allt gott og blessað með það, en hinsvegar þá stakk það mig er við sem oftar fórum í björgunaræfingu einn daginn, þá var mér á orði er við vorum að setja gálgann fyrir gúmmí björgunar bátanna út, að skipið væri löngu sokkið eða brunnið áður en við kæmum fólki um borð í bátana, þessi græja sem á að slaka bátunum niður er svo svifasein. Hafið þið hjá siglingastofnun fengið athugasemd um þetta atriði? Við hásetar töluðu um það að best væri að henda fólki frekar í sjóinn heldur en að bíða eftir þessum gálga.
Kær kveðja frá Eyjum.
Helgi Þór Gunnarsson, 11.4.2010 kl. 22:54
Sæll Simmi.
Er Helgi Þór að gefa í skin að björgunarbúnaður Herlófs sé ekki
eins og hann á að vera, ef svo er er þetta grafalvarlegt mál.
Er ekki rétt að koma þessu til réttra aðila, svo úr verði bætt.
Er að fara skipinu.![](/js/tiny_mce/plugins/emotions/images/Frown.png)
Kv. frá Eyjum Leifur í Gerði
Leifur Gunnarsson (IP-tala skráð) 12.4.2010 kl. 14:46
Heill og sæll Helgi og Leifur, þessi búnaður sem ég set hér myndir af er allt annar búnaður en á Herjólf , þetta er vist kerfi frá Víking með raðtengdum gúmmíbjörgunarbátum.
Það á að vera hægt að rýma þessi skip á ákveðnum tíma og ég var viðstaddur svona ævingu þegar þessi búnaður var fyrst prófaður á Herjólfi, í það skiptið var þetta í lagi og náðist tímalega að rýma skipið. Ég veit því miður ekki hvernig þessar ævingar hafa verið gerðar á síðustu árum. Ég ætla að athuga þetta betur og set þá eithvað um það hér við þetta blogg mitt.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 12.4.2010 kl. 22:52
Sæll Sigmar, það er gálgi sem á að slaka gúmíbátunum niður eftir að fólk er komi í þá, þennan gálga þarf að slaka úr fyrir borðstokk, og það með handafli, það tekur svo langan tíma að þeir eru búnir að koma sér upp borvél sem skrúfar gálgan úr á svona tvemur mínótum, þetta kerfi hefur aldrei virkað því það er óbreitt síðan skipið var smíðað, því miður, og þeir á Herjólfi vita þetta, enn, vitið þið þetta á siglingastofnun?
Auðvita átti ég að láta vita fyrr, því ef eitthvað hefði gerst í vetur þá væri ég illa haldin sálarlega.
Með fyrirframm þökk.
kær kveðja frá Eyjum.
Helgi Þór Gunnarsson, 12.4.2010 kl. 23:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.