3.2.2010 | 22:26
Toyota umboðið
Toyota umboðið reiknar með fyrir lok vikunnar verði ljóst hvaða bíla þarf að innkalla hér á landi vegna mögulegs galla í eldsneytisgjöf.
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi segir m.a í þessari grein:" að ef fólk teldi að bensíngjöfin í bíl þess sé eitthvað stíf þá sé það að sjálfsögðu hvatt til að koma og láta skoða bílinn.
Mig langar að upplýsa Úlvar og þá sem eiga Toyota bíla, að þessi bilun í bensíngjöf Toyota bíla lýsir sér ekki eins og Úlvar segir að bensýngjöfin sé stíf alla vega ekki á mínum bíl. Ég á Toyata Raf 2007 motel, á 2,5 árum hefur það komið þrisvar sinnum fyrir að bensíngjöfin festist inni og helst þannig í nokkrar sekundur, sem getur verið afar óþægilegt og hættulegt ef bensíngjöfin festist þegar billinn er á mikilli ferð. Hjá mér hefur þetta bæði gerst á 90 km hraða og 40 til 50 km hraða, en bensíngjöfin hefur verið alveg eðlileg á milli þess að hún festist.
Ég hafði samband við Toyota umboðið strax og fréttir af þessu fóru að bersat og fékk strax tíma fyrir bilinn þar sem þetta var skoðað og lagfært. Frábær þjónusta hjá þessu umboði eins og alltaf.
Min reynsla er sú að Toyota umboðið er langbesta bílaumboð landsins og bílarnir sem ég hef keypt af umboðinu hafa lítið sem ekkert bilað. Ég hef því enþá þá skoðun að hvergi sé betri þjónusta en hjá Toyota umboðinu.
Innköllun skýrist fyrir helgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
'Eg er með Rav líka 2006 og þetta hefur skeði tvisvar fyrsta árið sem hann festist í botni.
og þegar ég nefndi þetta við þá á verkstæðinu, vildu þeir kenna mottunum um.
En þettta kom ekki fyrir aftur... veit ekki hvort þeir gerðu eitthvað...
En eftir síðustu heimsókn mína í 60 þús km skoðun hjá Toyota hét ég því að skipta ekki við þá meir.
Aðeins þjónustu skoðun ekkert að.. og þeir rukkuðu um 54 þúsund krónur fyrir ekki neitt.
Hef heyrt það að það marg borgi sig að fara með bílinn til eyja og láta hann í þjónustu skoðunn þar..
þar borgar maður 1/4 af þessari upphæð hef ég heyrt frá fleirum en einum...
Kv gilli
Gilli (IP-tala skráð) 4.2.2010 kl. 22:53
Heill og sæll frændi, takk fyrir þessa athugasemd. Já maður sleppur nú sjaldan út frá umboðinu nema vera 40,000 kr fátækari. Þegar ég fór með bílinn til að láta laga bensíngjöf, var mér vinsamlegast bent á að komin væri tími á skoðun sem fara þarf ef ábyrgð á að haldast á bílnum. Ég samþykkti þessa skoðun og spurði hvað hún kostaði. 30,000 kr var svarið. Þegar ég sótti bílinn var reikningur upp á 39500 kr. Ég röflaði en án árángurs.
Ég fer samt ekki ofan af því Gilli að þjónustan hjá þessu fyrirtæki er mjög góð í alla staði, en maður þarf að borga fyrir hana
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 7.2.2010 kl. 12:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.