Styðjum Björgunarsveitirnar

 Á fáum götum á landinu hafa gegnum árin verið sprengt jafn mikið eða meira af flugeldum, tertum og hvað þetta heitir allt saman og við Illugagatu í Vestmannaeyjum. Þetta má þakka útgerðarmönnunum Bedda á Glófaxa og Vitta útgerðarmanni á Stíganda en þeir búa báðir við Illugagötu. Þessir útgerðarmenn hafa stutt Björgunarfélag Vestmannaeyja svo um munar gegnum árin með því að kaupa mikið magn flugelda af öllum stærðum og gerðum. Á ég sterkar og góðar minningar frá því þegar ég bjó við IIlugagötu og tók þátt í því með Bedda og mörgum fleiri að koma hluta af öllu þessu púðurdóti á loft. Ógleymanleg þessi gamlárskvöld með góðum nágrönnum sem við áttum þegar við bjuggum við  Illugagötu 38. 

Myndin er tekin af Heiðari Egilssyni og er af Illugagötu, fremsta húsið á miðri mynd er Illugagata 2 þar sem Óskar Matt og Þóra Sigurjónsdóttir byggðu og bjuggu til margra ára, blessuð sé minning þeirra.

Enn og aftur STYÐJUM BJÖRGUNARSVEITIRNAR með því að kaupa hjá þeim flugelda.  

 

Heiðar gamlárskvöld 1


Auðunn Jörgensson

Auðunn og Óskar Matt 007

  Á þorláksmessu fór ég á bryggjurúnt eins og vanalega, í leiðinni var ég búinn að mæla mér mót við Auðunn frænda minn sem er að gera upp gamlann trébát í einu húsinu á Grandagarði.

Auðunn var nýbúinn að setja vélina niður  þegar ég hitti hann. Það sem búið er að gera við bátinn er virkilega flott og vel gert, en töluverð vinna er eftir í lúkkar og inni í stýrishúsi. Það var virkilega gaman að skoða bátinn og ekki síður gaman að spjalla við Auðunn um þetta tómstundaáhugamál hans.        Þarna hitti ég líka Aron frænda son Auðuns en hann hafði ég ekki séð síðan hann var smápeyi.

Það verður gaman að fylgjast með þegar Óskar Matt verður sjósettur fullbúinn en það á báturinn að heita.  

Myndirnar eru af þeim feðgum Auðunn Jörgensyni og Aron Auðunssyni og bátnum. 

 

 

  

 

Auðunn og Óskar Matt 012

 Auðunn og Óskar Matt 013


Bloggfærslur 28. desember 2013

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband