Jólastjarnan eftir Sigurð Óskarsson

Sigurður Óskarsson báta og gluggasmiður með meiru gerði þennan texsta ásamt gullfallegu lagi sem hann kallar Jólastjarnan, lagið kom út á diski fyrir Jólin 2007 diskurinn heitir   Jól með Óskari og Laugu. Þessi texti á að mínu viti vel við þessa dagana.

 

Jólastjarnan

 

Nú jólaljósin ljóma í kvöld,

svo litfríð björt og tær.

Þau minna á jólastjörnuna,

sem sífelt ljómar skær.

 

Hún boðaði komu frelsarans,

Sem lýsir skært vorn heim.

Við hlíta eigum orðum hans

Og helga oss megum þeim.

 

Því undirstaða hamingju

Er sífelda kenning hans.

Við skulum gleðjast saman í kvöld,

Yfir komu frelsarans.

 

Um trúna sem er oss æðsta hnoss

við skulum standa vörð.

Og efla frið og hamingju

á meðal manna á jörð.

 

Eftir Sigurð Óskarsson


Bloggfærslur 10. desember 2013

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband