25.1.2011 | 23:03
Skemmtilegir dagar í Danmörku
Það er alltaf gaman þegar nýr einstaklingur kemur í heiminn. Þann 4. janúar fæddist þessi litla stelpa í Danmorku eins og ég hef reyndar áður sagt frá hér á blogginu mínu. Við hjónin skelltum okkur til Danmörku í 10 daga til að heilsa upp á Hörpu, Þór, Kolbrúnu Soffíu og litlu nýfæddu stelpuna þeirra. Við áttum góða daga þarna í Árósum og eru þessar myndir teknar í ferðinni.
Á fyrstu mynd er Kolla með nýjasta barnabarnið og sú litla sem ekki hefur enn fengið nafn.
Að sjálfsögðu var komið með hangikjöt frá Íslandi og það borðað með grænum baunum og rófum. Á myndinni eru t.f.v; Harpa, Halla, Kolbrún Soffía, Simmi, og Kolla. Kolla Soffía komst í varalitinn hjá ömmu sinni.
Kolbrún Soffía heldur hér á litlu systir
Harpa og Kolla með þá nýfæddu.
Þarna eru Þau Þór og Harpa að fara með þá litlu í smá göngutúr í fyrsta skipti. Myndin hér að ofan er af Kollu litlu og Þór pabba hennar að horfa á sjónvarpið, sennilega á myndina Palli var einn í heiminum.
Bloggar | Breytt 26.1.2011 kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)