Hugleiðing eftir Ágúst Sæmundsson

Hugleiðing

Ég er gamall og lúinn og geng ekki hratt

og get ekki fylgt hinum yngri.

Víst er það dauflegt ég segi það satt,

að sjá hvernig ellin hún gerir allt bratt

og verkamannsviðbrögðin þyngri

 

Já oft virðist brekkan sú brött og svo há

og bjartsýnin næstum að þrjóta.

Gangan svo erfið og getan svo smá

að gangmóðan langar að sneiða þar hjá

hvíldar og næðis njóta.

 

En áfram skal þramma um ævinar stig

og ánægður lífinu taka.

Oft hefur lánið þar leikið við mig

og ljúfsælu stundirnar minna á sig

Á leiðinni ef lít ég til baka.

 

Eftir Ágúst Sæmundsson


Bloggfærslur 16. janúar 2011

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband