18.4.2010 | 21:08
Gullveig VE 331 og þekktir Eyjamenn
Mb. Gullveig VE 331 með síldarfarm, Siglufjörður fyrir stafni.
Á myndinni er Sigurgeir Ólafsson ( Siggi Vídó )
Mb. Gullveig á trolli 1943.
T.f.v; Guðni Jónsson, Jón Bergur Jónsson og Hafsteinn Stefánsson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.4.2010 | 17:38
Sjöstjörnu VE sökkt
Myndirnar tók ég þegar Sjöstörnu VE var sökkt um árið norðan við Eiðið (í Halldórsskoru) , Félag áhugamanna um öryggismál sjómmanna stóð fyrir þessari tilraun. Þarna var verið að prófa Losunar og sjósetningarbúnað gúmmíbjörgunarbáta.
Bloggar | Breytt 11.11.2013 kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2010 | 11:29
Formannavísur um formenn í Vestmannaeyjum
Formannavísur, eftir Loft Guðmundsson, kveðnar um formenn sem stunduðu róðra frá Vestmannaeyjum vetrarvertíðina 1944.
Loftur var fæddur í Þúfukoti í Kjós 6. júni 1906. Hann lauk kennaraprófi 1931. Kennari á Stokkseyri 1032-1933. Lengst var Loftur kennari við Barnaskola Vestmannaeyja, 1933 -1945. Hann orti fjölda gamankvæða og er úrval þeirra í ,,Öldinni Okkar" undir nafni ,, Leifur Leirs''. Þá samdi Loftur refíur, gamanþætti, drengjasögur og dægurlagatexta. Loftur Guðmundsson lést 29. ágúst 1978.
Þessar vísur eru úr Sjómannadagblaði Vestmannaeyja 1995 ég mun birta fleiri vísur á næstu dögum. Sjálfur safnaði ég saman þessum myndum af formönnunum.
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)