Jólaskapið að taka völdin

Sigurður Óskarsson hljómsveitarstjóriSigurður Óskarsson trésmiður kafari báta og gluggasmiður með meiru gerði þennan texsta ásamt gullfallegu lagi sem hann kallar Jólastjarnan, lagið kom út á diski fyrir Jólin 2007 diskurinn heitir   Jól með Óskari og Laugu. Þessi texti á að mínu viti vel við þessa dagana.

 

Á myndinni er Sigurður Óskarsson kannski nokkrum árum yngri en hann er í dag, en hann hefur lítið breyst kannski komin nokkur grá hár ef ég man rétt.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Jólastjarnan 

 

Nú jólaljósin ljóma í kvöld,

svo lítil björt og tær.

Þau minna á jólastjörnuna,

sem sífelt ljómar skær.

 

Húnboðaði komu frelsarans,

Sem lýsir skært vorn heim.

Við hlíta eigum orðum hans

Og helga oss megum þeim.

 

Því undirstaða hamingju

Er sífelda kenning hans.

Við skulum gleðjast saman í kvöld,

Yfir komu frelsarans.

 

Um trúna sem er oss æðsta hnoss

við skulum standa vörð.

Og efla frið og hamingju

á meðal manna á jörð.

 

 Eftir Sigurð Óskarsson  

 


Bloggfærslur 19. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband