Færsluflokkur: Dægurmál
26.8.2007 | 22:50
Gott veganesti fyrir lífið á þessari jörð.
Gott veganesti fyrir lífið á þessari jörð.
Vertu alltaf hress í huga,
hvað sem kann að mæta þér.
Lát ei sorg né böl þig buga,
baggi margra þungur er.
Vertu sanngjarn, vertu mildur,
vægðu þeim sem mót þér braut.
Bið þinn Guð um hreinna hjarta,
hjálp í lífsins vanda og þraut.
Treystu því að þér á herðar,
þyngri byrði ei varpað er.
En þú hefur afl að bera,
orka blundar næg í þér.
Þerraðu kinnar þess er grætur,
þvoðu kaun hins særða manns.
Sendu inn í sérhvert hjarta,
sólargeisla kærleikans.
Höfundur ókunnur
Dægurmál | Breytt 29.8.2007 kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)