Vigdís Finnbogadóttir í Eyjum

Vigdís Fimmbogadóttir forseti í heimsókn í Vestmannaeyjum, með henni á myndinni er Svanur Jónsson og Tómas Sigurðsson ( Sæsi) þarna stödd á Nausthamarsbryggju.Til hanmingju með afmælið Vigdís.

Vigdís, Svanur og Tommi


Hér er herskipið Fylla á ytri höfninni í Vestmannaeyjum

danska_herskipi_fylla[1]Hér er herskipið Fylla á ytri höfninni í Vestmannaeyjum þarna má sjá Bjarnaey, Elliðaey og Klettsnefið. Fylla var eitt af stæðstu herskipum dana og var við gæslu hér við land, myndina fann ég í gömlu albúmi sem mér var gefið.


Fylla


Fylluljóð eftir Gylfa (Guðna Eyjólfsson kyndara)


Fylluljóð eftir Gylfa.
Gylfi sá er ljóðið kvað var Guðni Eyjólfsson kyndari í Gasstöðinni í Reykjavík. Hann var einn hinn mikilvirkasti og vinsælasti í hópi gamanvísnaskálda á þessum árum, þriðja áratugarins.


Lag: Kväservals
Á sumrin er gaman að ganga sjer
um göturnar eftir að rökkva fer,
ef ,, Fylla” er liggandi úti’ í ál,
og ekki’ er á varðbergi nokkur sál.
Gæti jeg krækt í danskan dáta,
sem dálítið borðalagður er,
þá mundu þær Runa og Ranka gráta
og rauðeygðar stara á eftir mjer.

Hún Ólafía’ er að vara’ os við
að vingast við pilta’ að dönskum sið;
það dragi á eftir sjer dilka smá,
er dálítin tími’ er liðin frá.
Gæti ég o.s.frv.

Já sú getur ritað oss ráðin fín
með reynsluna’ og gráleitu hárin sín,
því hún hefur aldrei þá sælu sjeð
að sitja í faðmlögum dáta með.
Gæti ég o.s.frv.

En nú skal ég segja ykkur sögu af mér;
jeg sá það eitt kvöld, hvar hann Jensen fer;
þá kalla jeg í hann að koama þar.
,, Ó, Kæreste” , segir hann, ,, hva’beha’ r”.
Gæti ég o.s.frv.

Ég varð þá dálítið undirleit –
almættið sjálft það á hæðum veit – ,
er gengum við þarna hlið við hlið,
og hann var að spjalla - um lágnættið.
Gæti ég o.s.frv.

Svo gengum við saman, uns sólin var
sigin í bládjúpu öldurnar;
þá settumst við úti’ undir Granda- garð.
Ó guð, hvað hann Jensen þá sætur varð.
Gæti ég o.s.frv.

Svo kisti hann mig ellefu kossa þar,
sem kvöldskugginn mestur var,
og sagði: ,, Du er so söd og fin”,
södeste, elskede Pigen min”.
Gæti ég o.s.frv.

En þá heyrðist blástur við bryggjusporð;
mjer brá, svo því lýsa’ ekki nokkur orð,
því bátskömmin litla beið þar nú,
og bjáninn hann Jensen minn þotinn var.
Gæti ég o.s.frv.

Jeg sá þá, hvað herstjórnin hláleg er
Að heimta hann Jensen minn strax af mjer,
Fyrst átti jeg kost á að eignast mann,
Svo indælan , sætan og ,, dannaðan”
Gæti ég o.s.frv.

Seinna jeg ein út á Granda gekk.
Ó, guð, hvað jeg ákafan hjartslátt fékk,
því Jensen og Sigga sátu þar
í sömu laut og jeg forðum var.
Gæti jeg krækt í danskan dáta,
sem dálítið borðalagður er,
þá mundu þær Runa og Ranka gráta
og rauðeygðar stara á eftir mjer.
- Gylfi

Vestmannaeyjahöfn misgamlar myndir

Flott gömul  a 2

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

scan0006


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband