14.8.2017 | 13:21
Sjóminjasafnið á Eyrarbakka er snyrtilegt og flott safn
Í sjóminjasafninu á Eyrarbakka eru margir munir sem gaman er að skoða og gamlir sjómenn kannast vel við og hafa jafnvel unnið með margt af því sem þarna er til sýnis.
Margt er þarna sem maður hefur aldrei séð og veit ekki til hvers var notað, þar á meðal þetta tæki sem örin bendir á.
Veir einhver hér á blogginu hvað þetta er og til hvers það var notað ?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2017 | 17:37
Sipbrotsmannaskýlið og vitinn á FAxaskeri
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2017 | 22:48
Áskell Egilsson hvalaskoðunarskip Akureyri
Það eru mörg hvalaskoðunarskip að fara með mannskap í hvalkaskoðun á Akureyri og fleiri stöðum í Eyjafirði.
Áskell Egilsson er einn af þeim, bátum flott uppgerður gamall eikarbátur.
Gaman að sigla í Eyjafirðinum á svona skipi og skoða hvali og einnig umhverfið :-)
Á seinni myndinni er Björgvin Sigurjónsson skipstjóri og Halldór Áskelsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2017 | 13:17
Gulur Heimaklettur
Það eru margir litir á Heimakletti á hinum ýmsu árstíðum.
Fallegt fjall Heimaklettur bæði á sumrin og veturna
Sumarmynd
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.6.2017 | 20:49
Enn og aftur bjargar Björgvinsbeltið
Enn og aftur sannar Björgvinsbeltið notagildi sitt, nú til að bjarga manni frá því að fara í straumharða Ölfusánna með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þetta einfalda öryggistæki Björgvinsbeltið var að mér skilst í einum lögreglubílnum og kom þarna að góðum notum. Þarna við Ölfusárbrú og auðvitað á fleiri stöðum á landinu við svipaðar aðstæður ætti að vera Björgvinsbelti eins og er á bryggjum í mörgum höfnum landsins. Það má einnig nota hér tækifærið og hrósa Björgunarfélagi Árborgar og lögreglu fyrir skjót viðbrögð við björgum þessa manns úr ánni.
Myndin er af Björgvin Sigurjónssyni sem hannaði þetta frábæra og einfalda björgunartæki
Reyndu ítrekað að stöðva för bílsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2017 | 11:28
Björgunarstokkur Björgvins Sigurjónssonar
Björgunarstokkur Björgvins Sigurjónssonar er eitt af þeim björgunartækjum sem ekki hafa fengið nægja athygli að mínu mati.
Þetta tæki Björgvins gerir það að verkum að auðveldara er að hífa menn upp úr sjónum þegar þeim er bjargað upp með Björgvinsbeltinu og öðrum búnaði sem notaður er til að ná mönnum upp sem fallið hafa í sjó við bryggjukanta.
Þetta eintak sem myndin er af gaf Björgvin lögreglunni í Vestmannaeyjum á sínum tíma.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2017 | 21:21
Þessi björgunaræfing er til fyrirmyndar.
Það er til fyrirmyndar að standa fyrir svona björgunarævingu og ómetanlegt fyrir áhafnir þessara farþegaskipa og auðvitað Slysavarnarfélagið Landsbjörg að vinna saman að þannig alvöru björgunarævingu.
Á annað hundrað manns tók þátt í risa björgunaræfingu sem haldin var á Faxaflóanum síðdegis í dag. Að æfingunni stóðu hvalaskoðunarfyrirtækin Special Tours og Elding og Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Risa björgunaræfing á Faxaflóa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2017 | 21:25
Nýr formaður Sjómannadagsráðs
Nýr formaður Sjómannadagsráðs Hálfdan Henrýsson
May 12, 2017 | Fréttir frá Sjómannadagsráði Reykjavíkur og og Hafnafjarðar:
Aðalfundur Sjómannadagsráðs fór fram fimmtudaginn 11. maí s.l. Þar bar helst til tíðinda að að kosið var um nýjan formann stjórnar, en Guðmundur Hallvarðsson, sem verið hefur formaður stjórnar ráðsins frá árinu 1993 gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Guðmundur kom fyrst inn í starfsemi Sjómannadagsráðs 1970.
Árið 1984 tók hann sæti í stjórn Sjómannadagsráðs og hefur hann verið formaður Sjómannadagsráðs s.l. 24 ár. Nýr formaður var kjörinn Hálfdan Henrýsson. Hálfdan kom einnig inn í stjórnina árið 1993 og hefur gengt þar stöðum ritara, gjaldkera og nú síðast varaformanns.
Guðmundur hefur haft mikil áhrif á starfsemi Sjómannadagsráðs á þessa langa og farsæla ferli. Mjög margt hefur breyst og hefur starfsemin vaxið og dafnað svo um munar. Starfsemi Sjómannadagsráðs telst til stærrri fyrirtækja landsins í dag og er Hrafnista stærsti veitandi af öldrunarþjónustu á Íslandi.
Guðmundi eru þökkuð góð störf í þágu félagsins og óskum honum allra heilla í framtíðinni. Háldan bjóðum við hjartanlega velkominn í formannsstólinn og ósku honum velfarnaðar í nýju starfi.
Til hamingu með formannsstarfið Hálfdán Henrýsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.5.2017 | 18:31
Hljómsveit frá Eyjum . Hljómsveit SÓ
Hljómsveit Sigurðar Óskarssonar frá Hvassafelli árið 1961. T.f.v: Þorgeir Guðmundsson gítar, Þráinn Alfreðsson píanó og bassa, Einar Sigurfinnsson söngvari, Jóhann Hjartarson harmónikka. Sitjandi Sigurður Óskarsson .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)