13.4.2009 | 22:31
Þorlákshöfn úr lofti séð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.4.2009 | 22:16
Skemmtilegt minnismerki um símalagningu til Vestmannaeyja
Skemmtilegt minnismerki um símalagningu til Vestmannaeyja. Eyjamenn lögðu eigin síma með sæstreng og vígðu 1911. Síminn minnist þessa á aldarafmæli síma á íslandi 2006.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.4.2009 | 10:49
Flottir Peyjar Kjartan og Gísli
Myndin er af bræðrunum Kjartani Ásmyndsyni og Gísla Ásmundssyni. (Kjartan til vinstri á myndinni).
Þeir eru að sjálfsögðu niðri í fjöru, Heimaklettur og höfnin í baksýn.
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.4.2009 | 21:57
Fleiri myndir frá Innsiglingu og fl
Einu sinni var innsigling til Vestmannaeyja eins og myndin sýnir. Og takið eftir að það er eingöngu sandur undir Löngu, en nú er þar svo til eingöngu gróður. Seinni myndin er af Langalóni sem er undir nýja hrauninu.
Kunnugleg sjón fyrir eldri eyjamenn.
Bloggar | Breytt 3.4.2009 kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.4.2009 | 23:10
Nokkrar fallegar Eyjamyndir frá Kjartani Ásmundssyni
Hér má sjá Arnodd Gunnlaugsson frá Gjábakka, hann var skipstjóri og útgerðarmaður á Suðurey VE og er þarna í stýrishúsglugganum á Suðurey VE 20.
Þetta er skemmtileg mynd, takið eftir dekkljósunum og kistu upp á stýrishúsi sem í var Gúmmíbjörgunarbátur og svo sést aðeins í miðunarstöðvarloftnetið.
Nokkrar skemmtilegar myndir frá Kjartani Ásmundsyni sem hann sendi mér og eru þær allar teknar fyrir Heimaeyjargosið 1973.
Og að sjálfsögðu eru þær frá austurbænum og Urðunum þar sem urðarkettirnir héldu sig í gamladaga
Innsiglingin og rafmagnsstöpplarnir sem tóku við rafstrengunum frá Heimakletti.
kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt 18.4.2009 kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
31.3.2009 | 23:18
Þeir störfuðu hjá Vestmannaeyjahöfn

Hafnarvarðarstarfið við Vestmannaeyjahöfn var stofnað árið 1925 og var Geir Guðmundsson Geirlandi fyrsti hafnarvörður. Aðrir sem hafa gengt þessu starfi eru:
Kristján Egilsson, Stað, bryggjuvörður
Böðvar Ingvarson, Ásum, hafnarvörður
Ólafur Eyjólfsson, Garðstöðum hafnarvörður
Kristinn Sigurðsson, Skjaldbreið, bryggjuvörður.
Sigurður Kristinsson, Löndum, aðstoðarhafnarvörður
Sigurgeir Ólafsson, Víðivöllum, hafnarvörður og hafnarstjóri frá 1982
Ólafur Kristinsson Hafnarstjóri
Sigurður Þ. Jónsson, Hásteinsveg 47 hafnarvörður
Ingólfur Matthíasson, Hólagötu 20 hafnarvörður
Sigurður Elíasson, Illugagötu 39 hafnarvörður
Einhver greinarmunur var gerður á því að vera bryggjuvörður og hafnarvörður, sem ég er ekki alveg klár á.
Hannes Jónsson var frá 1910 til 1923 ?
Stefán Pálsson aðstoðarhafnarvörður frá 1921. ( þá sóttu um starfið m.a. Eyþór Þór, Árni Johnsen og jón Waagfjörð)
Geir Guðmundsson Geirlandi 1925. laun 3000 kr. Ári. Sagði upp 15.02.1933
Árni Þórarinsson
Eyvindur Þórarinsson
Sigurður Kristinsson, Löndum, hætti 10.07. 1974
Angantýr Elíasson, í 50% starfi sem hafnsögumaður
Bergsteinn Jónsson, Múla hætti í 11. nóvember 1974
Jóhann Bjarnason, Hoffelli, frá 21.11.1974. Siðar yfirhafnavörður ? 1977
Ágúst Bergsson, Illugagötu 35 03.01.1977. Siðar skipstjóri á Lóðsinum.
Willum Andersen
Sveinn Halldórsson
Kristján Eggertsson
Ingibergur Friðriksson frá Batavíu
Arnar Sigurðsson ( Addi Sandari)
Sigurgeir Jónasson
Ólafur Jónsson Laufási
Hafnsögumenn við Vestmannaeyjahöfn Hannes Jónsson var ráðinn hafnsögumaður frá 7. desember 1925.
Úr fundargerð bæjarstjórnar frá þessum tíma: Samþykkt að stofna hafnsögumannsembætti með 2500 kr árlegum launum úr hafnarsjóði. Hannes beri sjálfur kosnað af ferðum í skipin. Hannes Jónsson gegndi þessu embætti til ársins 1937.
Árni Þórarinsson var skipaður vara- hafnsögumaður 29.12.1934 en varð síðar fastur hafnsögumaður.
Eyvindur Þórarinsson (hann hætti störfum 1947).
Jón Í Sigurðsson, hafnsögumaður
Angantýr Elíasson, hafnsögumaður
Þórður Rafn Sigurðsson, hafnsögumaður
Björgvin Magnússon, hafnsögumaður
(Árni J Johnsen hafnsögumaður er ekki viss?)Friðrik Ásmundsson, hafnsögumaður
Gísli Einarsson hafnsögumaður
Andrés Sigurðsson hafnsögumaður
Skipstjórar á LóðsinumEinar Sveinn Jóhannesson
Ágúst Bergsson
Sveinn Rúnar Valgeirsson
Vélstjórar á LóðsinumSigurður Sigurðsson
Einar Hjartarson Geithálsi
Óli Sveinn Berharðsson
Gísli Einarsson
Hjálmar Guðmundsson
Vigtarmenn hjá VestmannaeyjahöfnTorfi Haraldsson
Eflaust eru fleiri menn sem koma til greina á þessum nafnalista, þeir sem til þekkja vinsamlegast gerið athugasemd hér að neðan í athugasemdarlista.
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt 19.4.2009 kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.3.2009 | 17:44
Ætli þeir séu að yngja upp hjá N1
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.3.2009 | 20:24
Það er fallegt í Vestmannaeyjm. Miðklettur og Ystiklettur
Vinur minn Kjartan Ásmundson sendi mér þessa fallegu mynd sem tekin er fyrir Heimaeyjargosið, hún er tekin frá lóðinni á Gjábakka. Með myndinni skrifar Kjartan eftirfarandi: Þessi mynd er tekin af hlaðinu heima þetta er eins og að horfa út um eldhúsgluggan , það er ekki ónýtt að hafa þetta fyrir augum. Við áttum heima á Bakkastíg 8 (Stóra Gjábakka) - Húsið beint á móti (aðeins hægra meginn) er Bakkastígur 9 þar bjó Addi vinur okkar á Suðurey - Hann var frá Gjábakka- Gjábakkarnir vor 3. KV Kjartan.
Sjálfur var ég í Eyjum í dag vegna vinnu minnar í fallegu veðri þar sem ég hitta nokkra skemmtilega Eyjamenn.
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
21.3.2009 | 15:56
Bifreiðarstöð Vestmannaeyja stofnuð 20.11.29
Áttatíu ár frá stofnun Bifreiðastöðvar Vestmannaeyja
Bifreiðastöð Vestmannaeyja var formlega stofnuð 20. nóvember 1929, stofnendur voru eftirtaldir bifreiðastjórar;
Helgi Benónýsson, Vesturhúsum, Gunnlaugur Gunnlagsson, Hólagötu 11, Lárus Árnason, Búastöðum, Páll Erlendsson Brekastíg 29, Baldur Sigurðsson Heiði, Ólafur Guðjónsson Stakkholti, Bernódus Stakkagerði, Jón Þorleifsson Sólhlíð 6.
Aðalhvatamaður að stofnun BSV var Helgi Benónýsson á Vesturhúsum.
Myndin hér til hliðar er af Helga Benónýssyni
Fyrsti stöðvarstjóri var Bjarni Jónsson Svarbarði.
Bifreiðastjórar á BSV
Myndin er tekin 1967 t.f.v; aftari röð: Hilmar Jónsson, Magnús Guðjónsson, Guðmundur Högnason, Einar Jónsson, Magnús Ágústsson, Ari Pálsson, Adólf Sigurjónsson, Jens Ólafsson, Gustaf Sigurjónsson, Guðsteinn Þorbjörnsson, Páll Gíslason, Jón Þorleigsson, Haukur Högnason, Ármann Guðmundsson. Fremri röð t.f.v; Daníel Guðmundsson, Sigurður Jónsson, Jóhann Gíslason, Oddgeir Kristjánsson, Andrés Guðmundsson, Engilbert Þorbjörnsson, Sigurjón Sigurðsson.
Á fyrstu árum BSV voru verkefni mjög fjölþætt . Allflestir fiskverkendur söltuðu sinn fisk og sólþurkuðu á svonefndum stakstæðum sem þöktu mikið landsvæði í Vestmannaeyjum hér áður fyrr. Þá var einnig fiskhausum og hryggjum ekið út um tún og hraun og sólþurkað. Oft var hér um að ræða útflutning á stórum förmum. Þá var mikið um að bifreiðastjórar ækju slógi og húsdýraáburði á tún og í kálgarða. Akstur fyrir fiskibáta hefur ávalt verið mikill bæði með fisk og veiðarfæri. Það skapaði einnig þó nokkra vinnu hér áður fyr að keyra vatni í brunna eyjamanna, það lagðist af þegar vatnsleiðslan var lögð til Eyja. Einn þáttur í vinnu vörubílstjóra í Eyjum var akstur svonefndra bekkjabíla á Þjóðhátíð, var þá settir bekkir upp á vörubílana og þeir síðan notaðir til að keyra fóli úr og í Herjólfsdal. Ég var tvö ár rukkari aftan á vörubíl hjá Ástvaldi í Sigtúni og græddi vel á þeim Þjóðhátíðum, því Ástvaldur var mjög sangjarn og borgaði mér vel fyrir eða viss % af innkomu. En ég man að þetta var mikil törn meðan á þessu stóð, en gaf góðan pening ef bílstjórar voru duglegir að keyra.
Ætli stæðsta verkefni bifreiðastjóra í Vestmannaeyjum hafi ekki verið vikurhreinsunin eftir Heimaeyjargosið 1973 en gífurleg vinna var við að hreinsa bæinn af vikri sem þakkti svo til alla Heimaey.
Þeir sem lengst störfuðu sem bifreiðarstjórar á BSV voru í því starfi í 50 ár, og flestir voru bilstjórar á BSV 35 menn.
Það gefur auga leið að við sem unnum á bátunum kynntumst þessum mönnum nokkuð vel og í minningunni voru þetta upp til hópa skemmtilegir og góðir menn. Ísleikur Jónsson var einn af þeim sem var svolítið sérstakur maður, en hann talaði alltaf um sig og bílinn sem eitt. Hann sagði til dæmis: Ég er búinn að vera með vatnstankinn á mér í tvo daga og keyra út miklu af vatni. Ég hef verið undir mér í allan dag að gera við. Eg ætla að bakka mér aðeins lengra og svo framvegis. Þetta var skemmtilegur kall og einstaklega góðu náungi. Mér er líka minnistætt að nokkrir af þessum mönnum leyfðu okkur strákunum að sitja í þegar þeir voru að landa úr bátunum. Þetta tafði þá aðeins því við urðum að fara út úr bilnum þegar verið var að vigta svo við skekktum ekki vigtina á fiskinum.
Hluta af þessari færslu tók ég úr gömlu Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja, en ég fékk á sínum tíma Magnús Guðjónsson bilstjóra til að skrifa um BSV sem hann og gerði vel og skilmerkilega. Það er því gott að þessi saga um Bifreiðarstöð Vestmannaeyja er til í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 1985 ásamt mörgum myndum frá sögu stöðvarinnar. Þökk sé Magnúsi Guðjónsyni.
Að sögn Magnúsar Guðjónssonar hætti BSV eða Bifreiðastöð Vestmannaeyja starfsemi 26. ágúst 2003.
kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt 22.3.2009 kl. 19:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.3.2009 | 23:47
Markúsarnetið búnaður til að ná mönnum úr sjó
Markúsarnetið.
Upphafsmaður Markúsarnetsins var Markús B. Þorgeirsson skipstjóri frá Hafnarfirði. Í maí 1981 var netið kynnt í Vestmannaeyjum og vakti það þá mikla athygli sjómanna og útgerðarmanna, þannig að um áramótin 1985 höfðu 300 skip komið sér upp Markúsarneti. Það sýndi að sjómenn höfðu trú á þessu björgunartæki, enda hefur það örugglega fækkað dauðaslysum á sjómönnum.
Markúsarnetið er björgunartæki sem hefur verið í stöðugri þróun frá því það var fyrst kynt. Það er níðsterkt og einfalt í notkun, létt og fyrirferðalítið og hentar því vel við erfiðar aðstæður. Netið er hannað til handvirkrar notkunar og einnig er hægt að nota krana til að hífa inn mann hvort heldur er standandi, sitjandi eða liggjandi en það er mikilvægt þegar slasaðir eða ofkældir menn eru dregnir úr sjó.
Markúsarnetið er framleitt fyrir allar stærðir og gerðir skipa og er fyrst og fremst hugsað til að ná mönnum úr sjó en það hefur einnig komið að góðum notum við að ná mönnum úr gúmmíbjörgunarbátum og upp í skip. Það samanstendur af geymsluhylki fyrir netið, lyftilínu, neti, kastlínu og brjóstlínu. Hér eru dæmi sem ég hef tekið saman um notkun netsins á neyðarstundu.
Í nóvember 1983 björguðust fjórir menn af þýska flutningaskipinu Kampen, sem fórst suður af Vestmannaeyjum. Þá hafði bæði mistekist að ná þeim upp úr sjónum með bjarghring og línu. Þótti Markúsarnetið þarna sýna að það var eina björgunartækið sem hægt var að nota við þessar aðstæður þar sem mennirnir voru allir útataðir í þykkri olíuleðju.
Árið 1984 féll maður í höfnina í Vestmannaeyjum og var bjargað með Markúsarneti.
Í október 1985 fór skipverji útbyrðis af Gígju VE þegar verið var að hífa inn nótina. Reynt var að ná honum inn með bjarghring en tókst ekki. Var þá náð í Markúsarnetið og því hent til hans og hann kom sér í það og gekk þá vel að ná honum um borð.
Í mars 1986 fór maður útbyrðis af Guðmundi Einarssyni frá hnífsdal. Veður var slæmt stormur og 8 til 10 stiga frost. Skipið var statt á rækjumiðunum NV af Kolbeinsey kl 22 að kveldi. Þegar maðurinn datt útbyrðis fór hann á kaf en skaut um nokkra metra frá skipinu. Honum tókst að synda að trollinu sem var úti og halda sér í það. Reynt var að henda til hans bjarghring og spottum en það gekk ekki. Þá var náð í Markúsarnet sem var þarna um borð og því hent til hans. Hann gat komið sér í það og gekk þá vel að ná honum aftur um borð. Skipstjórinn sagði eftir óhappið að ef þeir hefðu ekki haft Markúsarnetið um borð þá hefðu þeir ekki náð manninum úr sjónum aftur.
Í febrúar 1987 tók skipverja út af vélbátnum Hrugni GK er skipið var statt út af Krísuvíkurbjargi, Hann náðist um borð aftur með Markúsarneti.
Það var í apríl 1987 sem Reynir EA fórst í slæmu veðri. Skipverjanum var bjargað með Markúsarneti og gekk sú björgun vel.
Þann 31 janúar 1988 féllu tveir hásetar af Guðmundi VE útbyrðis er þeir voru staddir 80 sjómílur frá landi úti fyrir Norðfirði. Slysið átti sér stað morgni í niðamyrkri. Mennirnir voru í flotgöllum og náðust upp með Markúsarneti og gekk björgun mjög vel.
Þann 7. mars 1989 sökk Sæborg SH 377 á Breiðafirði í slæmu veðri og miklum sjó en sjö skipbrotsmenn komust í gúmmíbjörgunarbát. Skipshöfnin á Ólafi Bjarnasyni SH 137 bjargaði síðan áhöfn Sæborgar SH með því að nota Markúsarnetið.
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt 20.3.2009 kl. 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)