19.8.2010 | 22:50
Gömul mynd
Ekki veit ég nákvæmlega hvenær þessi mynd er tekin eða hvar í Eyjum, en á henni eru t.f,v: Erla Sigmarsdóttir heitin, Matthías Sveinsson vélstjóri og Gísli Sigmarsson útgerðarmaður og skipstjóri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2010 | 23:42
Öryggisbúnaður Hafna hér og erlendis er misjafn
Á þessum myndum sést hvað bryggjukantar eru lágir aðeins um 10 sm og með flága sem auðveldar bílum og hjólum að fara yfir kanntinn. Á 'islenskum bryggjum er lagmarkshæð 20 sm. þessi bryggja er er alveg ný. Bryggjustigar á þessari bryggju eru góðir en ekki búnir ljósum eins og á íslenskum bryggjum. Engann bjarghring eða annan björgunarbúnað var að sjá þarna á þessari bryggju, en þarna er fólk mikið að veiða á stöng.
Sem áhugamaður um öryggismál sjómanna og þar með hafna kom mér á óvart þegar ég var á ferð í Skagen í Danmörku, hvað öryggisbúnaður í höfnum þar er öðru vísi en á Íslandi, Þar er óhemju mikið af fólki á ferð um bryggjurnar en litið um öryggisbúnað ef skys ber að höndum. Í Íslenskum höfnum eiga vera samkvæmt reglum um öryggisbúnað hafa eftirfarandi Búnaður á ákveðnu millibili.
Krókstjaki, Bjarghringur, Björgunarnet eða Björgvinsbelti, bjölluskápur eða sími, stigar með ljósi. Þá á lýsing að vera góð og sérstaklega er tekið fram að aðgengi að þessum björgunarbúnaði á að vera góð.Á bryggjurúnt sem við fórum um höfnina í Skagen fannst mér þetta vera allt miklu ver búið en í íslenskum höfnum, þarna sannfærðist ég um það enn einu sinni að við Íslendingar erum að mörgu leiti miklu framar í slysavörnum við sjó og einnig um borð í íslensku skipum. Enda hefur slysum fækkað verulega á síðustu 30 til 40 árum.
Þessi bjarghringur var eini björgunarbúnaðurinn á þessari bryggju sem var með langan viðlegukannt. Dönsku bátarnir eru upp til hópa vel við haldið eins og þessi á myndinni.
Reykajvíkurhöfn er til fyrirmyndar hvað öryggisbúnað snertir, þessar myndir hér fyrir neðan tók ég af hluta af þeim öryggisbúnaði sem þar er. Annars er öryggisbúnaður hafna sem ég hef séð kringum landið í nokkuð góðum lagi þó sumstaðar megi gera betur. Miðað við hafnir sem ég hef séð erlendis eru íslenskar hafnir upp til hópa miklu betur búnar öryggisbúnaði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.8.2010 | 23:50
Einu sinni var
Myndirnar eru teknar 1965 á skemmtistað í Grimsbý sem heitir eða hét Mekka, Kristján Valur Óskarson og undirritaður.
Við frændurnir vorum á þessum árum í siglingum á Leó VE 400 sem á þessari mynd er nýmálaður við svokallaða Kolabryggju í Grimsby. Glæsilegur bátur og frábært sjóskip sem mér hefur alltaf þótt vænt um.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.8.2010 | 22:33
TF-LÍF nær í veikan mann
Sækir norskan sjómann
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, er á leið til Reykjavíkur með veikan sjómann af norskum togara.
Beiðni barst frá togaranum rétt fyrir klukkan sjö. Þá var maðurinn orðinn talsvert kvalinn en talið er að hann sé með einhverskonar bólgur í munnholi sem leiði upp í höfuð.Togarinn er staddur 175 sjómílur norðvestur af Reykjavík og tekur flugið um þrjár klukkustundir fram og til baka, áætlað er að TF-LÍF lendi á Reykjavíkurflugvelli um klukkan hálfellefu. Þetta er fjórða útkall þyrlunnar á tveimur vikum þar sem sækja þarf veikan mann um borð í togara á hafi úti.
Enn nær TF-LÍF í veikan sjómann af erlendu skipi hér út í haf. þetta er ánæjuleg frétt og við getum enn einu sinni verið stollt af þessum mönnum sem stjórna þessum frábæru björgunarþyrlum. En þetta vekur mann til umhugsunar um það hvort þau lönd sem eiga sjómenn sem stunda veiðar hér við land, ættu ekki að taka þátt í rekstri þeirra björgunartækja sem margoft hafa á undanförnum árum sótt veika menn af skipum þeirra á haf út. Fyrst þjóðin getur ekki rekið nema tvær þyrlur þá þurfum við að fá hjálp við það frá nágrannaþjóðum.
![]() |
Sækir norskan sjómann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.8.2010 | 16:49
Kaffi Torg á Akureyri ( Heilræði)
Eftirfrandi er skrifað á gler umhveris kaffihúsið Kaffi Torg í Glerártorgi.
Lifa elska óska fá,
una dreyma hljóta.
Hlæja gleðjast hrífa þrá,
heilsa faðma njóta.
Það er gott kaffið og meðlætið á Kaffi Torg á Akureyri
Ég mæli með því.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.8.2010 | 23:15
40,000 farþegar með Herjólfi
Það kom fram í fréttum í dag að Herjólfur er búinn að flytja á milli Eyja og Landeyjahafnar yfir 40,000 sagt og skrifað fjörutíuþúsund farþega frá 21 júli og til dagsins í dag, eða að jafni 300 farþega í ferð. Þetta er alveg með ólíkindum. Það virðist ekkert lát verða á ferðamannastraumnum til Eyja sem er hið besta mál.
Nú bíður maður spenntur eftir því hvernig veturinn kemur út fyrir þetta skip.
Bloggar | Breytt 22.8.2010 kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.8.2010 | 22:52
Stöndum öll með Slökkviliðs og sjúkraflutningamönnum
Stjórn Bandalags háskólamanna, BHM, samþykkti á fundi sínum í dag ályktun þar sem lýst var yfir stuðningi við kjarabaráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, LSS.
Ég tek heilshugar undir stuðningsyfirlýsingu BHM, það er hneyksli að það skuli ekki vera löngu búið að semja við þessa menn. Það er einnig merkilegt hvað fáir hafa ályktað um stuðning við Slökkviliðs og sjúkraflutningamenn, eins og þeir eru okkur öllum mikilvægir. Við skulum hafa það í huga að það veit engin hvenær við sjálf þurfum á þeim að halda. Við getum lent í slysum hvenær sem er, eða það komi upp eldur í húsum okkar eða á vinnustað. það er ómetanlegt að eiga þessa þrautþjálfuðu menn að þegar í neyð rekur hvort sem það er vinnuslys, bilslys, eldsvoðar eða önnur áföll sem við meigum eiga von á.
Slökkviliðsmenn og sjúkraflutningamenn hafa einnig verið duglegir að fara í fyrirtæki og kynna rétt viðbrögð við eldsvoðum og fyrstu hjálp. Þetta hef ég sjálfur reynt á undanförnum árum.
Við skulum því standa með þessu fólki það á það sannarlega skilið af okkar samfélagi.
![]() |
BHM styður kjarabaráttu LSS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.8.2010 | 22:24
Þórður á Skansinum rífur skúra fyrir Ísfélagið
Bloggar | Breytt 11.8.2010 kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.8.2010 | 21:59
Myndir frá Þjóðhátiði
Þessi mynd er úr Þjóðhátíðarblaði 1994. og er hún tekin 1960.
Myndin er úr myndasafni Friðriks Jessonar íþróttakennara, og fyrsta forstöðumans Fiskasafnsins í Eyjum m.m.
Texti er undir myndinni, en þarna ættu einhverjir Eyjamenn að kannast við andlitin.
Þessi mynd af vini mínum Helga á Reynistað er í Þjóðhátíðarblaði Týs 1989, en Helgi hefur verið duglegur undirbúningsmaður fyrir Týr Þjóðhátíðir, alla vega í gamla daga ég veit ekki hver tók þessa mynd af Helga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.8.2010 | 18:18
Enn er það þyrla LHG sem kemur til Bjargar
Landhelgisgæslan var kölluð út á fimmta tímanum í dag vegna tilkynningar um leka í bát rétt vestan við Þorlákshöfn. Að sögn hafnarvarðar í Þorlákshöfn gengu björgunaraðgerðir vel.
Enn sannast það hvað við eigum mikið undir því að eiga tiltækar góðar þyrlur með þjálfuðum áhöfnum. Vonandi kemmst þessi bátur að landi með menn og afla, og ef svo verður er það enn ein sönnun þess að við verðum að eiga góðar þyrlur og það ekki færri en fjórar.
Því miður hafa nokkuð margir trébátar sökkið á síðustu árum, og er það umhugsunar efni. Á síðasta ári voru 208 tréskip á Íslenskri skipaskrá í ýmsum verkefnum.
![]() |
Tilkynnt um leka í bát |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)